þriðjudagur, desember 31, 2002

Hvernig er eiginlega forgangur hjá Forsvarsmönnum í Landspítala-Háskólasjúkrahúsins? Hverjir hérna sem eru að lesa fannálinn minn(Þessir 6 manns) lásu Fréttablaðið þann 28.12? Þar var áhugaverð grein um Landakot. Heilabilunardeildin var lokuð í sumar "tímabundið", það átti að opna Deildina aftur þann 06.01.03. En ekkert verður úr því í staðin er komin Húðdeildin?!?!?!?!?!!!!!!

Jæja þannig er um rassinn hlúið. Húðdeildin er mikilvægari en Heilabilunardeildin! Þetta fólk sem er á svona deildum og hjúkrunarheimilum þurfa á aðhlynningu 24 klukkutíma dagsins. Og það voru 18 manns á þesari deild og af þessum 18 þá voru 3 sendir heim!!!! SENDIR HEIM?!?!?!?! HVAÐ Í *-/+-/%$&$# ERU ÞEIR AÐ HUGSA?!?!?! Þetta fólk þarf hjúkrun hjá fagfólki. Og af sem ég best veit þá er ekki heimahjúkrun á nóttunni.

mánudagur, desember 30, 2002

R-listinn er dauður. Nú er það staðreynd. Framsóknar-menn og Vinstri-Grænir hafa drepið R-listann. Og Framsóknin er búinn að fremja pólitískt sjálfsmorð.
Eftir að Ingibjörg sagði af sér þá mun R-listinn tapa miklu fylgi sem fer (Því miður) til D-Listans.
Alfreð og Árni Þor eru ekkert nema tækifæris-pólitíkusar og voru greinilega bíða eftir rétta tímanum til að bola Ingibjörgu burt. Slátra gullkálfinum. Þetta var greinilega tækifæri til að kyssa hana Júdasar-kossi.
Þetta var líka hálfvitaleg viðbrögð hjá þeim þegar hún bauð sig framm í 5. sætið. Það er ekki einsog það sé öruggt Þingsæti. Ég meina þetta er hjá Samfylkingunni ekki Sjálfstæðisflokknum. Ys og þys útaf saur í kanil.
Hún er að berjast við Halldór og Davíð!!!!! En þetta var samt líka heimskulegt hjá honum Halldóri að flytja sig um set. Hann átti meiri möguleika á öruggu þingsæti í Suðrkjördæminu en í Reykjavík. Ef hann tapar þá fær Ingibjörg sætið hans.
Ég ætla að biðjast afsökunar til notenda horn.is. Ég sló in vitlausa slóð það var ekki judas_disciple.blogpsot.com heldur judas_disciple.blogspot.com.

sunnudagur, desember 29, 2002

ÉG er soldið fúll útí gestina mína hér á minni blogg-síðu. Samkvæmt teljaranum(síðast þegar ég leit á hana) þá hafa 422 manns heimsótt síðunna en 6 samkvæmt gestabókinni. ÞAnnig ef ég fer eftir stærðfræðinni þá hafa þessi 6 komið á síðunna 70.33333 sinnum. Ég veit það nú best að ég er ekki svona áhugaverður. Þannig viljið þið gestir mínir skrifa í gestabókinna.

laugardagur, desember 28, 2002

Samkvæmt teljarannum þá hafa 398 manns komið á teljarann. Og ef ég fer eftir gestabókinni þá hafa 5(6 ef þið teljið mig með) manns heimsótt síðunna. Ef ég fer eftir þessu þá hafa þessir sömu komið 66.33333 sinnum síðunna. ÉG veit þa ðsjálfur að ég er ekki svo merkilegur. Þannig ég vil endilega biðja fólkið sem fara á þessa síðu og hafa ekki skrifað í Gestabókinna
. ÉG hafði fyrir því að skrifa allar þessar umsóknir.
Það er ekki langt í Nýja árið. Sem betur fer þarf ég ekki að vinna á Gamlárskvöld en ég þarf að vinna á nýarsdag. Þannig það er ólán í láni.

En lífið er gott. Við Sono ætlum að taka yfir heimlinu hjá mömmu og pabba koma með Amelie á DVD og horfa á hana í nýja fína PS2 sem fjölskyldan fékk frá Bróum mínum.

Annað gaman. Fór í klippingu á Þorláksmessu og lét skilja bartanna eftir. Rosa gaman og síðan rakaði ég mig á Annan í jólum. Fagnaðarraksturinn!!!! Og nú get ég leikið klósettatriðið með Elvis. Þannig langar mig að deyja. Hjartaáfall á meðan maður er að kúka.

föstudagur, desember 27, 2002

Ég fór á bekkjarpartý í gær. Það átti að vera gaman og það var gaman að sumu leyti. En fyrir mig var þetta einsog að setja salt á opið sár. Það var margt um þennan bekk sem eg rifjaði upp og mér leyst bara alls ekki á.

Og Dóri kannski ppizzurnar eru betri þegar þú ert að vinna en hver sem gerði pítsuna núna var ekki neitt sérstaklega handlagin í því.

þriðjudagur, desember 24, 2002

!!!!!!!!!!!!GLEÐILEG JÓL!!!!!!!!!!!!!


!!!!!!!!!!OG FASÆLT KOMANDI ÁR!!!!!!!!!!


Ég ætla að spila miklu fleiri tölvuleiki eftir þessi jól.

sunnudagur, desember 22, 2002

ég horfi of mikið á sjónvarp.... og ég spila alltof mikið af tölvuleikjum...

a href="http://quizilla.com/users/theandrea/quizzes/What%20Office%20Space%20character%20are%20you%3F/">
What Office Space character are you?
brought to you by Quizilla
Fucking hell ye!!!!! Alltof margir tölvuleikir...

Harry%20Potter
The Ultimate *Which Harry Potter Character are You?* Quiz

brought to you by Quizilla
Ætti ég að tala við Dodda? Alltof alltof margir tölvuleikir.


Which Personality Disorder Do You Have?

brought to you by Quizilla
Kemur mér alls ekkert á óvart. Kannski þessir tölvuleikir hafi farið illa með mig?


What Slasher Movie Killer Are You?

brought to you by Quizilla

Var að horfa á Frailty. Bara andskoti góð og mjög óvænt. Annars er allt gott að frétta. Tveir af minum bræðrum(af 3.) komu í gær um miðnætti.

fimmtudagur, desember 19, 2002

Nöldur #3.
Hótel Höfn. Hvað kom fyrir Ósinn? ég pantaði flatböku(pítsu(pizzu)) þaðan í dag og það er í fyrsta skipti síðan í Maí. Í Maí voru flatbökurnar vondar. Núna eru þær verri! Þetta var hræðilegt. Ég pantaði flatböku með nautahakki, pepperóni og extraosti. Nautahakkið var ofsteikt, og of lítið af því. Flatbakan leit út einsog hún væri með fílapensla! Pepperóní-ið var ekki eldað! Og deigið... var ennþá deig. Hvað kom fyrir ástkæra Ósinn!!!!! Og í þokkabót kostaði hún 1200 kr!!!!!!! Á víkinni kostðai hún 990 kr. 9 tommur.

Annars er allt í fína. Keypti lifandi tré í gær. Þetta er í fyrsta skipti sem ég kaupi lifandi tré. Og það síðasta. Og skreytum það líka í gær. Og kötturinn vill endilega líka sér. En hún læri lexíu sína þegar hún stingur sig.

Og kötturinn er núna líak mestu leyti sofandi útaf greddunni þessa vikunna.

miðvikudagur, desember 18, 2002

Kæri Jónas. Ekki taka þetta til þín. Ég nenni ekki að rífast um pólitík. Ég skal segja frá öllu sem mér finnst óþolandi um Samfylkingunna einn góðann veðurdaginn. En við hljótum að vera sammála því að VG er mest óþolandi flokkurinn!
Í öðru lagi:
Slagorðið hjá Sjálfstæðismönnum "Stétt fyrir stétt"! Ef þetta væri rétt hjá þeim þá væri ekki svona mikill munur á Fátækum og ríkum. Einn gamall maður sagði mér að hann fengi 16000 frá lífeyrissjóð og þar af færu u.þ.b. 10000 í skatt! Þetta kalla ég ekki stétt fyrir stétt.

Og hverjir muna ekki eftir Öryrkjamálinu? Það var yndislegt. OG ég man eftir því að einhver spurði Björn Bjarna þegar borgstjórnarkosninginn var í hámarki um Öryrkjamálið þá svaraði hann pent "Hva, er þetta ekki löngu dautt mál!"!!!!!!!!! Og talandi um borgarstjórnakosningarnar. Ég hef aldrei séð jafn mikið ósamræmi í hjá einum flokki. D-listinn hafði allt aðra stefnuskrá í fyrir borgarstjórnina en ríkisstjórnina! Og Ég vorkenni D-listanum fyrir að hafa þessa konu í borgarstjórn. Óþolandi kerling.
Fyrsta lagi:

Af einhverjum ástæðum mundi ég allt í einu eftir Bónus-bréfinu. Munið þið ekki eftir því. Þegar Össur skrifaði bréf til Bónus með hinum og þessum frösum? Og sjálfstæðismaðurinn(Hvað sem hann heitir) gaf út bréfið og sagði "Þetta er Samfylkingin í anda". Össur skrifaði neðst:
"Össur Skarphéðinnsson, Lífeðlisfræðingur" Það var ekkert minnst á Samfylkingunna og hann sagði ekki "Össur Skarphéðinnson, Formaður Samfylkinginunnar" Og síðan gerðu Sjálfstæðismenn rosalega mikið úta þetta!
Mig langar að fá að vita hvað hefði gerst hefði Davíð skrifað sama bréf og endað með orðunum "Davíð Oddson, Lögfræðingur". Segið mér "Sjálfstæðismenn" hvað hefðu þið sagt þá. Og segið satt!
Það er margt sem pirrar mig. Og ég ætla mér að skrifa sitt lítið af hverju núna

mánudagur, desember 16, 2002

ÉG elska ketti. Alveg dýrka þá. Vil alltaf eiga ketti. O.s.frv. En nú er ég komin með eina reyslu um ketti sem ég vil helst ekki upplifa aftur. Það er það þega læður eru að drepast úr greddu. Kötturinn minn sem er 9 mánaða er að drepast úr greddu. Og vill ekki hætta að breima. Það eina hún sem gerir núna er að breima, éta, skíta og sofa. Kannski ég ætti að taka bangsann sem hangir á vegginum til þess að fá eitthvað að ríða.

En nóg um það. Þessi helgi er ég bara búinn að vera veikur. Hósta, hnerra og snýta. En ég lék samt í gær. Það er ekki til nein afsökun við því að leika ekki nema dauði. Manns eigin þá.

föstudagur, desember 13, 2002

Jæja ég fékk loksins tölvu um helgina. Fekk hana gefins frá vinafólki(Vinir? ÉG?!) og þegar ég tók hana með mér heim þá byrjaði ég á því að formatta hana. ÞAÐ TÓK 26 KLUKKUTÍMA!!!!! Og þegar ég var búinn að formatta hana þá vildi hún ekki kveikja á sér. Þannig ég sendi hana í viðgerð. Komst að því að sonur vinafólks míns hafði eyðilagt harða diskinn, móðurborðið og týnt drivernum fyrir skjákortið. Vúppí. En nú er hún í fínu lagi og ég á eftir að eiga marga góða daga með henni. Og öllu ofbeldisfulluleikjunum mínum.

P.S.
Til Hamingju Helga Lúcía.

miðvikudagur, desember 11, 2002

Skemmtileg þessi umræða um tölvuleiki. Það er alveg stórskemmtilegt hvað foreldrar reyna að komast framhjá því að vera kallaðir vondir foreldrar. Þið hafið fylgst með þessari umræðu er það ekki? Það er verið að tala um að ofbeldisfullir leikir, kvikmyndir og þættir skapi geðsjúk börn. Nei ÞETTA ER ALVEG RANGT. Tökum mig sem dæmi(Þótt ég sé ekki besta dæmið) ég spilaði Wolfenstein, Duke Nukem, Pacman, Eye of the beholder, Ultima, Doom o.s.frv. Ég er ekki búinn að taka upp byssu eða sverð og drepið fólk hér út á götu útaf því að það eru allir nasistar eða þjófar!

Tölvuleikir, sjónvarpsþættir og Kvikmyndir skapa ekki geðveik börn. Heldur fá geðveik börn hugmyndir. Það er eitthvað að krökkunum ef þeir byrja að herma eftir tölvuleikjum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum! Og það er þá sem foreldrar verða að líta í eigin barm og skoða hversu góðir foreldrar þeir hafa verið!

Who's your daddy?? Find out @ blackhole

mánudagur, desember 09, 2002

So true so true





Take the What High School
Stereotype Are You?
quiz, by Angel.
ER að klára snilldarbók sem heitir Spellsinger eftir Alan Dean Foster. Ég mæli með henni sem hafa gmana af fantasíum.

föstudagur, desember 06, 2002

Hún Sono fékk bréf frá Svæðisvinnumiðlun Austurlands um það að hún eigi að koma á fund til Vökuls næsta fimmtudag. Í þessu bréfi stóð að hún ætti að búa til plan sem sá sem er viðstaddur á að samþykkja. Þetta plan á að ganga út á það að hún eigi að fá vinnu!!! Nei hver andskotinn. Þessi áætlun á að vera raunsæ og á að framfylgja henni. Mig langar að spurja þann sem er að lesa þetta(Ef það er þá einhver) ef maður er atvinnulaus og er að leita sér að vinnu. Gengur þá þessi "áætlun" út á eitthvað meira en að hringja eða mæta á vinnustaði og spurja um vinnu eða sækja um vinnu? Síðan á hún að skila skýrslu um hvernig gengur á tveggja mánaða fresti. Hversu langa skýrslu? Ef manni gengur illa á maður þá ekki að segja. "Ég er ennþá atvinnulaus. En ég er ennþá að leita!" og ef maður er komin með vinnu þá segir maður "Komin með vinnu" eða bara alls ekki neitt.

Sumt af þessu er bara alltof skrýtið, hvernig við náðum að breyta samfélaginu yfir í það sem George Orwell skrifaði um í 1984.
Og hann var að reyna að vara okkur við!

fimmtudagur, desember 05, 2002

Geriðið þið það fyrir mig . Skrifið í andskotans gestabókinna. Ég hafði fyrir því að skrifa öll þessi umsókn.
ÉG er komin með ákveðin hausalista. Þaes fólk sem er réttdræpt í mínum augum:
1. Kennarayfirvöld á Englandi. Því í t.d. sögu þá kenna þeir ekkert um Breska sögu, þeir kenna í staðinn Ameríska sögu. Villta vestrið og þess háttar. Sono visii t.d. ekki hvað Magna Carta var!
2. Hálfvitarnir sem breyttu Sindrabæ frá frábæru leikhúsi, góðu bíó-i og þar fram eftir götum í ónothæft leikhús og Sjónvarpssal!
3. Davíð Oddson
4. Steingrím J. Sigfússon

Passiði ykkur bara. Því ef þið gerið eitthvað sem mér er ekki til geðs þá bættist þið inn á listann!

miðvikudagur, desember 04, 2002

Ég elska Höfn. En það er eitt sem fer í taugarnar á mér. Það er það að við köllum Höfn fiskveiðibæ. Af hverju? Jú útaf því að það eru 3 fiskifyrirtæki hér. En Hvar er þá ferski fiskurinn? Af hverju fáum við engann ferskan fisk hér í þessum bæ? Ég vil fá ferskan fisk. Ekki frosinn fisk. FRESKAN!!!!!! Þannig við þurfum á Fiskiverslun að halda. Hver hérna vill setja á stofn Fiskiverslun sem selur ferskan fisk? Og kannski kjöt með því?

Það er líka tvennt hér sem vantar. Bókabúð og Músíkverslun. Þetta þrennt vil ég sjá hér og þá mun ég elska þennan bæ meira.
Hvað er þetta með Jónas og Helgu Lúcíu? Af hverj ueru þauað rífast um þetta? Ég ætla að enda þetta rifrildi núna:
Félagsfræði: Fyrir þá sem vilja öðlast meiri skilning á samfélaginu, félagslífinu, lífið og tilverunni í heimspekilegu sjónahorni.
Náttutúrufræðibraut: Fyrir þá sem vilja öðlast meiri skilning á náttúrunni, hvernig lífið gengur fyrir sér á þessari jörð, lífið og tilverunna í vísindarlegu sjónarhorni.
Málfræðibraut: Fyrir þá sem vilja geta ferðast um heiminn án þess að nota túlk.

So take your pick and shut up.
Ég er búinn að taka þá ákvörðun að gerast hjúkrunarfræðingur! Og nú eru áræðanlega flestir af mínu kyni að hugsa "Ha, hjúkrunarfræðingur. Er það starf fyrir karlmann?" og þá segi ég nú bara mér finnst það álitlegra að verða hjúkka heldur en læknir. Það er ekki hringt í mann 30 sinnum á nóttunni þannig ég fæ að halda mínum svefni alveg þangað til ég eignast krakka. Ekki skil ég hvað er að mínum kynbræðrum þegar þeir halda að þetta sé eingöngu kvennastarf. Ætli einhver þeirra hafi reynt að lyfta 100 kílóa karli eða nokkrum kerlingum? Ég segi nú bara það að eina ástæðan fyrir því að konur vinna í þessu starfi er útaf því þær eru hugrakkari en flestir karlmenn. Þetta er alveg einsog með það að karla mundu aldrei þola það að vera ófrískir... hvað þá að fæða eitt stykki barn! Eða tvö!

En nóg um það. Hún Makó(Tengdó) vinnur í Lancaster háskóla og komst að því að ég get farið styttri leiðinna. Þannig ég þarf ekki að klára framhaldskólann. Þeir í Englandi eru að reyna að fá fleiri til að læra hjúkrunarfræði og læknisfræði, þannig að nokkri fá undanþágu. Einsog ég. Þeir sem eru búnir að vinna á sjúkrahús eða hjúkrunardeild um einhvern tíma þá fá þeir undanþágu. Ég er búin að vinna á HSSA(Skjólgarð) í u.þ.b. 2 ár þannig það eina sem ég þarf að gera er að læra í eitt ár fyrir GSCE-próf(Jafngildi Stúdentspróf) standast þau og þá get ég farið beint í hjúkrunarfræði eða læknisfræði! Vúhú.

Þannig ákvörðunin er sú að flytja til Englands í Maí(Líklegast) á næsta ári og fara á eilíft pöbbarölt.

þriðjudagur, desember 03, 2002

Já þetta vissi ég. Ætli Sono verði ánægð með þetta eða er ég meira bresk en hún?




Jolly good, wot! Anyone for tennis? That'll be ten ponies, guv. You're the epitome of everything that is english. Yey :) Hoist that Union Jack!

How British are you?

this quiz was made by alanna


Ég náði loksins að skoða slúðursíðunna hans Eysteins. Hverjir hérna muna eftir slúðursíðu Rögnvalds? Hún var að mörgu leyti betri en þessi, en eini margttæki munurinn er sá að hjá honum Eysteinni eru myndir og færri málfræðivillur.

mánudagur, desember 02, 2002

Sýning #2 var í gær. Þessi sýning var góð. Mjög góð. Og að Jónas skuli voga sér að segja að önnur sýning er alltaf verst. Það er bull og helvítis vitleysa Jónas! Eina ástæðan af hverju þetta er sagt er útaf því að hér áður fyrr var sýning #2 alltaf haldin daginn eftir frumsýningarpartý. Þannig allir voru skelþunnir. Núna eigum erum við ekki með þetta vandamál.

sunnudagur, desember 01, 2002

Nýr fídus. Tilvitnun. Ég mun gefa út tilvitnun þegar ég nenni og þegar ég finn góða tilvitnun.
Var að klára að lesa Hogfather eftir Terry Pratchett. Ekki nema helvítis snilld. ÉG mæli reyndar líka með Thief of Time, Mort, The colour of magic, The light fantastic og reyndar allri seríunni sem eru 25 bækur!
2.Sýning í dag.


Þetta er sú sýning sem ég kvíði sem mest fyrir. Af hverju? Útaf því að flest almennt fólk heldur að þessi sýning er verri en Frumsýningin. Eða þá að fólk kemur með of háar væntingar! Eða það kemur bara gamalt fólk sem heldur kjafti allan tímann. General prufan er líka mjög stressandi. Hún fyrir mig tekur mest af stressinu burt. Þanig að ég er aldrei stressaður fyrir frumsýningu. En hvað um það. "Elsku Ingvar, Break a leg, poj poj. Og ekki nefna skoska leikritið"

Hvernig hérna hafa pælt í þessu hugtaki. Break a leg? Ég hef komist af því hvað það þýðir. Upprunalega var þetta Break a log. Flest leikhús höfðu þessi tjöld sem voru dregin upp og niður. Og á endanum á þessum tjöldum voru trjádrumbar. Og tjöldin voru hífð upp og niður þegar var klappað. Semsagt, þetta var þannig að fá það oft klappað að drumbarnir mundu brotna.



Ég fór á Jarðaför í gær. Það var hún frænka mín Guðrún Sigurðardóttir frá Fagurhólsmýri. Það sem ég get sagt er að ég mun sakna hennar. Þetta var ein yndislegasta kona sem hefur verið á þessari jörðu. Og þetta var stór reynsla. Ekki góð, vond eða þvíum líkt bara stór. Rigningin var alver ferleg. Það ringdi meira þar en hér á Höfn. Og Hofskirkja leynar alveg rosalega á sér. Að utan gæti maður haldið að hún tæki 20 manns hámark. Seinna meir frétti ég að hún gæti tekið 80 manns. Jahá. En þetta er mjög skemmtileg kirkja. allvega mun skemmtilegri til útlits en Hafnarkirkja. Seramónían var svona u.þ.b. 50 mínútur, og það sem kom mér mest á óvart... ég sofnaði ekki neitt. Efitr það fórum við í Hofsgarð í erfisdrykkjunna. Það eina sem var gott við það var maturinn! Ég þekkti kannski svona á bilinu 10-15 manns þarna. Síðan fórum við heim. Og ég og systur mínar sváfu mesta alla leiðinna...