fimmtudagur, júní 05, 2008



Þetta var sett á mig í gær, tók u.þ.b. 40 mínútur og kostaði ekki nema 60 pund, ég er andskoti ánægður með þetta. Fyrir þá sem vilja vita hvað allt þetta þýðir, bláa mynstrið er mynstur sem ég fékk frá Verenu, þegar hún fór til Þýskalands til að heimsækja fjölskyldunna þá keyptu hún bolla handa mér og á því var þetta flotta mynstur sem kallast Indisch Blau og kemur frá Friesland, norður-Þýskaland. Þetta græna er nafnið hennar Kaitlyn Bjargar í rúnum og ég valdi grænt útaf því að afmælissteinninn hennar er smaragður. Og svo fyrir neðan allt saman er dagurinn sem hún fæddist og fannst mér það líka helvíti skemmtilegt að númerið er 354.

Einsog ég sagði, ég er andskoti ánægður með þetta, það hefur tekið 6 ár að reyna finna rétta húðflúrið.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er naumast! En þetta er fallegt tattoo. Kveðjur Mamma Þín

Nafnlaus sagði...

VÁ!!!!

Geggjað alveg, til lukku með það.

Nafnlaus sagði...

Mjög flott tattú