miðvikudagur, apríl 09, 2003

Hvað er að Unglingum hér á Höfn? Hvað á ég við? Lásuð þið Moggann? Ja hvað á ég að segja. Tökum dæmi. Það sem kom fyrir síðustu helgi. Sjófararnir sem fengu ekki frið fyrir þeim. Voru ekki að gera neitt nema að fá sér í glas á Kaffihorninu. Síðan kemur einn froðhaus(líklega einn af mínum fyrrverandi bekkjarfélögum) og byrjar að tala við og segja hversu góu, sterkur og myndarlegur hann er. Og þeir(Sjófararnir) trúa honum ekki. Hann verður reiður. Hann byrjar að berja. Og síðan koma fleiri og byrjar líka að berja. Þeir vita ekki af hverju þeir bara sjá slagsmál og verða að taka þátt í því. Löggan kemur reynir að hjálpa en það tekst lítið. Þeir fylgja þeim að skipi þeirra. But low and behold Hverjir eru að bíða. Froðhausarnir(The Gangs of Hornafjörður) bíða eftir þeim .Þeir vita ekki af hverju þeir eru að bía eftir þeim þeir vita bara að þeir vilja slást, en þeir vita ekki heldur af hverju þeir velja berja þessa sjófara.

Og fólki finnst skrýtið af hverju fólk vill helst ekki koma til Hornafjarðar að skemmta sér? Nú útaf þessum helvítis Froðhausum.

Síðan var brotist inn í Olís og Íþróttahúsið. Til hvers? Þarna eru froðhausarnir greinilega líka að verki.

Þetta minnir mig á þegar einhver/jir brutust inn í Líkhúsið?

Eitt orð hálfvitar sem halda að ofbeldi sé svar við öllu. En þetta sýni bara hversu heimskir þeir eru fyrst þeir halda að ofbeldi leysi allt.

Engin ummæli: