föstudagur, júlí 08, 2005

Blessað verði fólkið.

fyrir þá sem voru kannski að velta því fyrir sér þá er allt í lagi með mig, var ekki nálægt London, og það er ekki hægt að kenna mér um það sem kom fyrir, ég er með fjarvistarsönnunn! En nóg af gríni þetta var/er hræðilegt það sem kom fyrir, en það sem mér þykir ótrúlegt að það var strax sagt "ÞETTA VAR AL-KAÍDA" án þess að hafa sönnunnargögn(sem skiptir greinilega ekki máli lengur) einsog hvernig sprengjuefni var notað, hvernig voru sprengjurnar sprengdar og þess háttar. Eina "sönnunargagnið" sem þeir eru með er að einhver á einhverri heimasíðu sagði "Við gerðum þetta."

Nei það var ég sem gerði þetta allt saman ég var búinn að plana þetta í nokkra mánuði en ég ætlaði að sprengja þær svo að London mundi ekki halda Ólympíuleikanna.

Hálfvitar.

En hér er eitt mikilvægt sem þið þurfið að lesa.

En ég ætla ekki að segja, einsog sumir, að þetta var gert af CIA, MI5, Mossad, KGB eða einhverjar aðrar stofnanir.

En af hverju þarf allt sem er svona slæmt vera framið af einhverjum sem er með öðru vísi húðlit og/eða trú? Af hverju getur það ekki verið að einhverju hvítur, enskur maður gerði þetta? Ég hef bent á fólki það sem kom fyrir í Oklahoma en þá segjir fólk "En það kom fyrir í BNA, svoleiðis hlutir gerast ekki hérna."
Sá sem mig grunar mest lítur svona út:
Image hosted by Photobucket.com

Þessi maður lýtur út einsog einhver helvítis útlendingur.

Engin ummæli: