fimmtudagur, apríl 28, 2005

Hann á afmæli í dag
hann á afmæli í dag
hann á afmæli hann Saddam
hann á afmæli í dag

Hann er 68 ára í dag
Hann er 68 ára í dag
Hann er 68 hann Saddam
Hann er 68 ára í dag

föstudagur, apríl 22, 2005

Peak Oil and the messengers of DOOM

Já þessir Dómsdagsspámenn fá mig alltaf til að hlæja. Kannast enginn við þetta? Dómsdagsspámennirnir fyrir 2000? "Þegar allar tölvurnar hætta að virka þá verðum við að nota smokka sem gjaldmiðill!"

Ég ætla nú ekki að nefna nein nöfn(hóst, hóst).

En hvernig væri nú að líta á björtu hliðinna á þessu, að minnsta kosti þá mun mannkynið(vonandi) deyja út, ef allt þetta mun koma fyrir.

En hvað um aðra orkugjafa? Er olía og Bensín og allt því tengt það eina sem hægt er að nota? Ef ég man rétt þá er frönskufeiti andskoti gott eldsneyti.

Jé ef svartagullið mun hverfa þá held ég að það sé nú bara tilefni til að fagna.

P.s
nýjar myndir

miðvikudagur, apríl 20, 2005

Kosningabaráttan hér á Bretlandi er orðin andskoti hörð, sérstaklega á milli Verkamannaflokksins og Íhaldsflokksins og virðist nú að Frjálslyndir Demókratar ætla bara að fylgjast með og bíða þangað til fólk sjái hversu lítill munur er á þessum flokkum, svona einsog Demókratar og Repúblikanar í BNA, Tweddledee and Tweddledum. Það versta við þessa kosninga er það að valið er á milli Satan(Tony B. liar) eða Lúsifer(Micheal Howard).

En það sem mér finnst merkilegt við þessa kosninga er það að það er bara talað um V-Flokkinn, Í-Flokkinn og FD-Flokkinn, en það er ekki minnst á Græna Flokkinn, SNP(Scottish National Party), Plaid Cymru(Velski þjóðarflokkurinn), BNP(British National Party, Neo-Nasistar á Bretlandi Unite. Þeir héldu veislu ekki fyrir svo löngu og ákváðu að ráða DJ til að sjá um tónlistinna, þegar hann kom loksins þá sáu þeir að hann var svertingji og sögðu honum nú bara fara aftur heim til sín, sá sem hélt veislunna sagði "Hann hljómaði hvítur á símanum"), Respect, Veritas, UKIP(United Kingdom Independence Party - Sem er hálfvitar, síðast þegar ég vissi þá var Bretland sjálfstætt, nema þeir viti eitthvað sem enginn annar veit) og svo eru ennþá fleiri sjálfstæðir frambjóðendur.

Það sem mér finnst vera ótrúlegt er hvað Breski almenningurinn er skítsama um þessa kosninga, þeir segja ég vil ekki sjá þennan flokk í stjórn en þegar maður spyr "Ætlarðu að kjósa?" Þá er svarið alltaf nei, "Og af hverju ekki?" "Útaf því að eitt atkvæði hefur enginn áhrif." Sem þýðir nú bara að fólkið hér hefur ekki heyrt um margt smátt gerir eitt stórt. Eina ástæðan fyrir því að V-Flokkurinn er við völd er útaf því að árið 1997, 70% Bretar ákváðu að kjósa og meirihluti þeirra vildu ekki sjá ljóta smjettið hans John Majors(Sem er líklega versti forsetisráðherra Bretlands fyrr og síðar) og vildu frekar Colgate módelið Tony B. Liar.

Ég er nú að vona að FD vinni fleiri sæti, en það er nú ekki mikill möguleiki á því að þeir muni vinna þessa kosninga, en í ár eru akkúrat 100 ár síðan síðasti LD forsetisráðherrann var við völd.

Eitt sem kemur mér á óvart er það að LD og Græni flokkurinn eru við stjórn í andskoti mörgum Bæjar(Borgar)ráðum en þeir virðast ekki getað fengið einhver völd á á Landsvísu sem er soldið sorglegt svo virðist sem að fólk sem kýs LD og Græna flokkin kjósi annað hvort V eða Í á landsvísu. Og ég hef verið að lesa um það sem nokkrir Múslímar hafa sagt um hvern þeirr ætla að kjósa, og þó nokkrir ætla að kjósa Íhaldið útaf því þeir(Múslimar þeas) voru á móti stríðinu, en þeir gelyma einu smáatriði, Íhaldsflokkurinn studdi stríðið, fleiri úr Íhaldsflokkinum kusu að fara í stríð en þeir sem voru í Verkamannaflokkinum. Það er alveg ótrúlegt hvað fólk er með lélegt minni.

Nokkrir hafa spurt mig hvern ég mundi kjósa... ég bara veit það ekki fyrir mig þá eru 3 valmöguleikar, FD, Græni flokkurinn eða einfaldlega autt atkvæði.

þriðjudagur, apríl 19, 2005

Ég segi nú bara hversu margir trúa því að ég er algjör engill?

You scored as Angel. Angel: Angels are the guardians of all things, from the smallest ant to the tallest tree. They give inspiration, love, hope, and positive emotion. They live among humans without being seen. They are the good in all things, and if you feel alone, don't fear. They are always watching. Often times they merely stand by, whispering into the ears of those who feel lost. They would love nothing more then to reveal themselves, but in today's society, this would bring havoc and many unneeded questions. Give thanks to all things beautiful, for you are an Angel.

Angel

75%

Faerie

75%

Mermaid

50%

Dragon

34%

Demon

33%

WereWolf

8%

What Mythological Creature are you? (Cool Pics!)
created with QuizFarm.com

föstudagur, apríl 15, 2005

Einn mikilvægasti hlutur í mínu lífi er kaffibollinn minn, og var hann eingöngu keyptur sem kaffibolli. En hinn fullkomni kaffibolli er:

Hvítur, tekur minnst 300 ml og er með eitthvert heimspekileg orð skrifuð á hann(Minn segir "Vision without Action is merely a dream, Action without Vision is just a chore, Action with Vision can change the world").

Hinn fullkomni kaffibolli má aldrei þvo með reglulegu millibili og á hann helst að vera brúnn og ljósbrúnn og á sumum stöðum kolsvartur útaf kaffinu. Það má bara nota KAFFI í kaffibolla ekki neitt annað jukk, ef á að drekka te notið annan bolla(eða helst notið bara vaskinn með engan tappa).

Alvöru kaffi á að vera nógu sterk til að brenna gat í gegnum stálteskeið, en enginn kaffikorgur með.

Nescafe og allt sem tengist því eða er líkt því er EKKI kaffi.

Alvöru kaffidrykkjumenn drekka 6-13 bolla á dag og geta samt farið að sofa klukkan 22:00.

Kaffi er án efa besti drykkur sem mannkynið hefur drukkið.

mánudagur, apríl 11, 2005

Ekki fyrir svo löngu keypti ég frábæra bók frá Dorling Kindersly sem heitir Healing Foods sem fjallar um hvaða matur er hollastur og af hverju og hvaða mat er best að borða við hvern kvilla og fann ég þar frábærra uppskrift sem kallast Rækjur í Grænu tei.

500 gr Rækjur
1 mts af Grænu tei
225 ml af sjóðandi vatni
1 mts af Sake eða Þurru Sérrí
1 1/2 mts af matarolíu

1. Setjið telaufin í hitaþolna könnu og hellið sjóðandi vatni yfir og leyfið standa í 15 mínútur
2. Hitið olíunna þangað til hún or orðin mjög heit, setjið svo rækjurnar og sake-ið(sérrí) og hrærið í cirka mínútu.
3. Hellið te-ið út og u.þ.b. helminginn af telaufunum og eldið í eina mínútu í viðbót.
4. Setjið rækjurnar í djupann disk, berið fram með Jasmine Hrísgrjón og hellið vökvanum yfir réttinn.

Þessi matur er stútfullur af B12 og E vítamínum og Phosphorus, og er einstaklega góður fyir hjartað og ónæmiskerfið.

föstudagur, apríl 08, 2005

Everything's been said before
There's nothing left to say anymore
When it's all the same
You can ask for it by name


Blessað verði fólkið.

Þið verðið að afsaka hvað ég er latur við að blogga en aðalvandmálið er það að alltaf þeg ar ég hugsa um eitthver gott blogg þá er það alltaf um miðja nótt þegar ég er að vinna! Sem er mj0g fúlt útaf því ég gleymi því jafnan eftir 90 mínútur.

Annars er nú ekki neitt mikið að frétta.

En mikið er ég nú glaður að sjá að páfinn er grafinn, hvað var að þessu fólki sem voru að flakka til Rómar til að horfa á lík sem var orðið vel grænt, hefði verið mjög viðeigandi að kalla þessa samkoma Necrophiliacs Anonymous.

Karl Bretaprins og Kamilla eru að fara að giftast á morgun og hefur nú verið mikið uppistand yfir því. Aðalega útaf því að þau eru bæði fráskilin og þau ætla að hafa borgarlega giftingu! O gvuð minn almáttugur JESÚS KRISTUR!!!!! Og kemur það mér alveg rosalega á óvart hvað Bretar taka þessu nærri sér. Og svo er alltaf verið að tala um hann sem framtíðarkonungs Bretlands... jahá, right-ho gangi honum vel, mig grunar nú að hún Elísabet eigi eftir að útlifa hann.

sunnudagur, apríl 03, 2005

You scored as Buddhism. Your beliefs most closely resemble those of Buddhism. Do more research on Buddhism and possibly consider becoming Buddhist, if you are not already.

In Buddhism, there are Four Noble Truths: (1) Life is suffering. (2) All suffering is caused by ignorance of the nature of reality and the craving, attachment, and grasping that result from such ignorance. (3) Suffering can be ended by overcoming ignorance and attachment. (4) The path to the suppression of suffering is the Noble Eightfold Path, which consists of right views, right intention, right speech, right action, right livelihood, right effort, right-mindedness, and right contemplation. These eight are usually divided into three categories that base the Buddhist faith: morality, wisdom, and samadhi, or concentration. In Buddhism, there is no hierarchy, nor caste system; the Buddha taught that one's spiritual worth is not based on birth.

Buddhism

96%

Satanism

75%

Islam

67%

Paganism

58%

Hinduism

46%

agnosticism

46%

Christianity

33%

Judaism

33%

atheism

33%

Which religion is the right one for you? (new version)
created with QuizFarm.com
Já þá er hann Jóhaness Páll Páfi hinn heilagi dáinn.......

jey.

Jamm, mér datt svona í hug að þegar ég heyrði að hann hafði fengið mjög háann hita að hann átti bara 12-24 klukkutíma ólifað. En það sem mér finnst merkilegt er að fólk syrgja hann. Maðurinn var fársjúkur, með Parkinson og búin að lifa næstum 85 ár sem er vel yfir meðalaldur karlmanna. Þetta er tilefni til þess að fagna, það er eitt sem ég er búin að læra á elliheimili, þegar einhver deyr þá þýðir ekkert að syrgja þann látna, því þegar fólk nær þessum aldri og þjáist af hinum og þessum sjúkdómum þá er reyndar ekkert betra fyrir þau en dauðinn.

Dauðanum ber að fagna einsog öllu öðru.

sunnudagur, mars 27, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Mér finnst gaman að lesa bækur og ég les mikið af þeim(Þó ég verð nú að játa að ég verða að lesa fleiri íslenskar bækur), og ein af mínum uppáhalds bókaseríum er Jarðsæ serían eftir Ursula K. Le Guin. Og varð ég nú mjög glaður þegar ég sá að eitthvert kvikmyndafyrirtæki var að búa til mynd byggð á þessari seríu með Danny Glover og Isabella Rossellini. Og í kvöld var þessi (sjónvarps)mynd sýnd á Channel 4...

...Og eftir 11 mínútur byrjaði ég nú að óska þess að þeir sem skrifuðu handritið hefðu lesið bækurnar en ekki bara lesið hvða stóð á aftan þeim!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ég er vissum að það hefði ekki verið erfitt að breytta þessari seríu í góðar myndir ef ÞEIR SEM SKRIFUÐU HANDRITIÐ HEFÐU LESIÐ HELVÍTS BÓKINNA!!!!!!!!!!!!!!! ARRRGGHHHHHHHHH!!!!!!!!

Nú er bar aað bíða og sjá hvernig The Da Vinci Code á eftir að koma út...

P.S.
Gleðilega Páska

fimmtudagur, mars 24, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Hún á afmæli í dag hún á afmæli í dag hún á afmæli hún Mamma, hún á afmæli í dag.
Hún er 25 ára í dag hún er 25 ára í dag hún er 25 ára hún Mamma hún er 25 ára í dag.

Já hún Mamma er sko merkileg kona hún hefur verið 25 ára síðan 1974 og svo virðist sem að það verður enginn breyting á því þetta árið.

Til hamingju með afmælið Mamma
Kossar og ástarkveðjur frá öllum hér á 8 Upper Brook Street.

fimmtudagur, mars 17, 2005


Þetta eru góðar fréttir
"...Bruce Dickinson's sixth studio album has now been mixed..." "...it will be named 'Tyranny of Souls' and will be released on May 23, 2005. The european release date is confirmed by the Spanish distribution company. It remains unknown if the rest of the world will get a simultaneous release." "...Bruce Dickinson's sixth studio album has now been mixed." VÍÍÍÍÍÍÍÍÍ I'm so happy:



Frábært. Ég hef beðið eftir plötu frá hoinum síðan hann gaf út Best-Of safnið sem innihélt 2 diska og diskur númer 2 var stútfullur af lögum sem hann hafði aldrei gefið út áður.En Bruce Dickinson með Roy Z, Adrian Smith, Eddie Casillas og Dave Ingraham gáfu útThe Chemical Wedding sem er að mínu mati besta þungarokksplata síðan Black Sabbath gaf út Black Sabbath.

En hérna um daginn þá keypti ég plötu sem fór beint í topp 10 þungarokkslistann minn. Diskurinn heitir Back to the times of splendor eftir Disillusion sem er hljómsveit frá Þýskalandi, þeir spila blöndur af Progressive-Death-Doom-Black Metall og gera það svo andskoti vel líka. Það eru 6 lög á þessari plötu en það tekur 56 mínútur og 52 sekúndur til að hlusta á þetta skrímsli. Það eru 2 lög undir 5 mínútur og 2 lög yfir 13 mínútur(Annað þeirra eru heilar 17mín) og 2 lög yfir 6 mínútur. ÉG sé ekki eftir því að hafa eytt pening í þett meistarastykki. Það er ómögulegt að segja hvert er besta lagið en ef fólk vill einilega dánlóda einhverju og þið eruð með ADSL þá mæli ég með "Alone I stand in Fires" og "Back to the times of splendor" ef þið eruð ennþá með 56kb Módem þá mæli ég með "Fall"
-----------------------------------------------------------
Vúhú
Spá því að meðalævi Bandaríkjamanna styttist á næstu árum vegna hárrar tíðni offituHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!!!!!

---------------------------------------------------------------------------------
Annars er það að frétta að ég hef verið frá vinnu í 8 daga(YESYESYESYESYESYESYESYESYES) "Hvernig tókst þér það? Spyr einhver, ég vann mánudag, Þriðjudag og Miðvikudag síðustu viku og mun ekki vinna fyrr en á morgun(sem er fúlt). En á meðan hef ég verið að setja fleiri myndir inn á albúmið mitt, laga sófann okkar, taka fullt af myndum og skipta á Kaitlyn.


sunnudagur, mars 06, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Svo virðist að breski herinn þjáist af skorti á hermönnum, því þeir eru alltaf að auglýsa á sjónvarpinu og ekki eru skilyrðin slæm. u.þ.b. 300 pund vikulaun og svæ getur maður lært ýmislegt eisnog Hjúkrunarfræði, bifvélavirkjun og svo framvegis. Persónulega finnst mér nú lítill munur á hermanni og Charles Manson.

þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Það er alltaf svo gaman þegar vel gengur:






Var að klára Minesweeper!!!!!!!!!!!!!!!!

miðvikudagur, febrúar 16, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo


Snobb snobb og helvítis snobb. Já það er eitt sem ég þoli alls ekki er Listarsnobb þess vegna finnst mér þessi frétt svo skemmtileg:

Gagnrýnir ræstitæknar þrífa burt nýlistaverk

Frábært, ókei nú langar mig að fá að vita hvernig getur Klósett verið meistaraverk? Maður pissar og skítur og hendi ýmsu rusli niður þangað og sturtar að því loknu og þvær kannski um hendurnar(Fer eftir því hvort sá einstaklingur trúir á bakteríur eða ekki). VÁ ÞVÍLÍKT MEISTARVERK!!!!!!!!!!!!!!! SJÁIÐ ALLIR SAMAN ÉG BJÓ TIL KLÓSETT OG ÉG SKEITT ÞAR OG STURTAÐI EKKI NIÐUR, og þetta get ég selt(án gríns) fyrir nokkra milljónir punda. Fór á gallerý sýningu með Sono og vinkonu hennar Gill í Lancaster með málverk eftir einhverja kvensu sem var föst í 9 áratuginnum og líklega ennþá hlustandi á Annie Lennox, Human League og Madness og var hún að selja málverkinn fyrir 1000 pund upp í 10000 pund og það sem fór í taugarnar á mér var það að þetta voru skítamálverk og kostuðu líklega ekki meira en 50 pund til að mála! En útaf því að einn merkissnobbhaus sagði að þau "....væru svo listræn og barnaleg og svo svo svo svo svo uhhhhhhh mikið af litum." Já vinurinn Grænt, Blágrænt, dökkgrænt og nei sjá ljósgrænt.

"... skjóttu mig í nó-ó-ó-ó-ótttttt..."

-------------------------------------------------------------------

Plata vikunnar The Headless Cross með Black Sabbath

mánudagur, febrúar 14, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Mér svona datt það í hug líka:



I am 97% loser. What about you? Click here to find out!

fimmtudagur, febrúar 10, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Hahahaha náði hærra stig en þú Jónas. Njanjanjanja.


I am nerdier than 79% of all people. Are you nerdier? Click here to find out!


Annars er það að frétta að ég er að fara í viðtal fyrir nýja vinnu og ég er að taka námskeið Basic food hygiene

föstudagur, febrúar 04, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Mér finnst andskoti gaman af því að baka brauð, sérstaklega með mikið af fræjum og á Mánudaginn var bakaði ég tvær brauðshleifar stúttfullar af fræjum sérstaklega Hampfræjum(Cannabis Sativa) og Poppy fræjum(sem gerir Opíum) þýðir þetta að ég ætli mér að rækta þetta? Nei, en þetta er bara svo andskoti hollt að borða, en ég skil ekki af hverju það má borða hampfræ en ekki sá þau og af hverju virka efnið
Tetrahydrocannabinol er núna hægt að kaupa í töflu formi og selt löglega en það er ólöglegt að rækta og reykja Cannabis! Getur einhver útskýrt þetta fyrir mig?

laugardagur, janúar 29, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo
Namu-Myoho-Renge-Kyo

Ekkert svosem að frétta en mig langar nú vara til að skrifa um hvað hefur komið fyrir hana Kaitlyn. Hún Kaitlyn Björg hefur nú þjáðst af Eczema sem hefur gert lífið okkar leitt og fékk hún það fyrst þegar hún var 1 mánaða gömul og með því fékk hún húðlýs(Scabies) og og fékk hún sýkingu með því sem gerði nú bara aðstæðurnar verri. Fengum við fúkalyf sem gerðu sitt gagn og svo notuðum við sérstakt krem til að drepa lýsnar sem virkaði líka en hún var samt með mjög þurra húð sem fór víst í taugarnar hennar og ákváðum við að nota ólifolíu á hana sem virkaði mjög vel og eftir u.þ.b. mánuð þá varð bakið hennar frábært.

En þegar hún varð 6 mánaða þá fékk hún vatnsblöðrur á hægri fætinum og var hún alltaf að nudda fæturnar saman og var að vakna með 2 tíma fresti sem fór nú soldið í skapið. En við héldum í vonina að þetta mundi nú bara hverfa... en nei eftir u.þ.b. 2 mánuði þá ákváðum við að baða hana með sérstakri baðolíu sem kallast Oilatum sem virkaði ekki nógi vel og fékk hún eczema um axlirnar og enni, og einn vinur okkar sagði að hann dóttir hans þjáðist líka af Eczema og hann hafi notað haframjöl í baðið sem virkaði mjög vel að hans sögn. Þannig við byrjuðum að nota haframjöl í böðin hennar Kaitlyn og ólifolíu á þá staði sem hún var verst til og útaf þessu svaf hún betur um næturnar sem var mjög gott, en húðin leit nú ekkert betur út þannig við tókum hana til Dr Graham sem gaf okkur sterakrem sem við vorum ekki mjög ánægð með en hann bætti við að við ættum bara að nota það þegar það versnaði.

Efitr þap fór hún Sono til Appleseeds sem er heilsumatarbúð hér í Ulverston og talaði við konurnar sem vinna þar og ein mældi með Chickweed krem og önnur mældi með að fara til homopata sem heitir Beth Moon.

Þannig hún Sono ákvað að kaupa þetta krem og taka Kaitlyn til hómópatans (smáskammtarlækni) sem gaf henni þrjár töflur af Psorinum 1M og þrjár töflur af Sulphur 1M... ... og sjá það virkaði!

Kaitlyn sefur nú yfirleitt 7 klukkutíma og oft meira. Sem gleður mitt hjarta. Því miður Vésteinn Smáskammtalækning virkar hvort sem þú trúir því eða ekki.

P.S.
Til hamingju Ísland ég öfunda alla sem fara á tónleikanna með Iron Maiden

miðvikudagur, janúar 26, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Mikilvægasti drykkurinn í þessum heimi og þeim næsta er án efa Kaffi ég held að ég drekki svona um og yfir 1 til 1.5 lítra af því á dag. Og ég er ennþá ekki búinn að fá hjartaáfall.
Það er núna komið yfir ár sían ég reykti síðast(Fyrir utan vindlarnir þegar Kaitlyn Björg fæddist og áramótin) en ég get nú ekki sagt að mér líði nú eitthvað betur.

Vill alþjóðlegan skatt til að fjármagna baráttuna gegn alnæmi Jamm hann er algjör snillingur ekki satt, Hann Sjakk Sírak og hversu margir jarðabúar mundu nú samþykkja það að verða skattlagði rétt einu sinni en? Fífl.

OG hér er annað fífl "Sharon: Heimsbyggðin gerði ekkert til að afstýra helförinni".
Og svo segir hann "...
sem gagnrýni Ísraela fyrir baráttuna gegn palestínskum vígamönnum vera hina nýju gyðingahatara". Sýnir nú hversu mikið hann hefur á milli eyranna.


The more I get to know people the more I like my imaginary dog.