sunnudagur, mars 27, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Mér finnst gaman að lesa bækur og ég les mikið af þeim(Þó ég verð nú að játa að ég verða að lesa fleiri íslenskar bækur), og ein af mínum uppáhalds bókaseríum er Jarðsæ serían eftir Ursula K. Le Guin. Og varð ég nú mjög glaður þegar ég sá að eitthvert kvikmyndafyrirtæki var að búa til mynd byggð á þessari seríu með Danny Glover og Isabella Rossellini. Og í kvöld var þessi (sjónvarps)mynd sýnd á Channel 4...

...Og eftir 11 mínútur byrjaði ég nú að óska þess að þeir sem skrifuðu handritið hefðu lesið bækurnar en ekki bara lesið hvða stóð á aftan þeim!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ég er vissum að það hefði ekki verið erfitt að breytta þessari seríu í góðar myndir ef ÞEIR SEM SKRIFUÐU HANDRITIÐ HEFÐU LESIÐ HELVÍTS BÓKINNA!!!!!!!!!!!!!!! ARRRGGHHHHHHHHH!!!!!!!!

Nú er bar aað bíða og sjá hvernig The Da Vinci Code á eftir að koma út...

P.S.
Gleðilega Páska

fimmtudagur, mars 24, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Hún á afmæli í dag hún á afmæli í dag hún á afmæli hún Mamma, hún á afmæli í dag.
Hún er 25 ára í dag hún er 25 ára í dag hún er 25 ára hún Mamma hún er 25 ára í dag.

Já hún Mamma er sko merkileg kona hún hefur verið 25 ára síðan 1974 og svo virðist sem að það verður enginn breyting á því þetta árið.

Til hamingju með afmælið Mamma
Kossar og ástarkveðjur frá öllum hér á 8 Upper Brook Street.

fimmtudagur, mars 17, 2005


Þetta eru góðar fréttir
"...Bruce Dickinson's sixth studio album has now been mixed..." "...it will be named 'Tyranny of Souls' and will be released on May 23, 2005. The european release date is confirmed by the Spanish distribution company. It remains unknown if the rest of the world will get a simultaneous release." "...Bruce Dickinson's sixth studio album has now been mixed." VÍÍÍÍÍÍÍÍÍ I'm so happy:



Frábært. Ég hef beðið eftir plötu frá hoinum síðan hann gaf út Best-Of safnið sem innihélt 2 diska og diskur númer 2 var stútfullur af lögum sem hann hafði aldrei gefið út áður.En Bruce Dickinson með Roy Z, Adrian Smith, Eddie Casillas og Dave Ingraham gáfu útThe Chemical Wedding sem er að mínu mati besta þungarokksplata síðan Black Sabbath gaf út Black Sabbath.

En hérna um daginn þá keypti ég plötu sem fór beint í topp 10 þungarokkslistann minn. Diskurinn heitir Back to the times of splendor eftir Disillusion sem er hljómsveit frá Þýskalandi, þeir spila blöndur af Progressive-Death-Doom-Black Metall og gera það svo andskoti vel líka. Það eru 6 lög á þessari plötu en það tekur 56 mínútur og 52 sekúndur til að hlusta á þetta skrímsli. Það eru 2 lög undir 5 mínútur og 2 lög yfir 13 mínútur(Annað þeirra eru heilar 17mín) og 2 lög yfir 6 mínútur. ÉG sé ekki eftir því að hafa eytt pening í þett meistarastykki. Það er ómögulegt að segja hvert er besta lagið en ef fólk vill einilega dánlóda einhverju og þið eruð með ADSL þá mæli ég með "Alone I stand in Fires" og "Back to the times of splendor" ef þið eruð ennþá með 56kb Módem þá mæli ég með "Fall"
-----------------------------------------------------------
Vúhú
Spá því að meðalævi Bandaríkjamanna styttist á næstu árum vegna hárrar tíðni offituHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!!!!!

---------------------------------------------------------------------------------
Annars er það að frétta að ég hef verið frá vinnu í 8 daga(YESYESYESYESYESYESYESYESYES) "Hvernig tókst þér það? Spyr einhver, ég vann mánudag, Þriðjudag og Miðvikudag síðustu viku og mun ekki vinna fyrr en á morgun(sem er fúlt). En á meðan hef ég verið að setja fleiri myndir inn á albúmið mitt, laga sófann okkar, taka fullt af myndum og skipta á Kaitlyn.


sunnudagur, mars 06, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Svo virðist að breski herinn þjáist af skorti á hermönnum, því þeir eru alltaf að auglýsa á sjónvarpinu og ekki eru skilyrðin slæm. u.þ.b. 300 pund vikulaun og svæ getur maður lært ýmislegt eisnog Hjúkrunarfræði, bifvélavirkjun og svo framvegis. Persónulega finnst mér nú lítill munur á hermanni og Charles Manson.

þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Það er alltaf svo gaman þegar vel gengur:






Var að klára Minesweeper!!!!!!!!!!!!!!!!

miðvikudagur, febrúar 16, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo


Snobb snobb og helvítis snobb. Já það er eitt sem ég þoli alls ekki er Listarsnobb þess vegna finnst mér þessi frétt svo skemmtileg:

Gagnrýnir ræstitæknar þrífa burt nýlistaverk

Frábært, ókei nú langar mig að fá að vita hvernig getur Klósett verið meistaraverk? Maður pissar og skítur og hendi ýmsu rusli niður þangað og sturtar að því loknu og þvær kannski um hendurnar(Fer eftir því hvort sá einstaklingur trúir á bakteríur eða ekki). VÁ ÞVÍLÍKT MEISTARVERK!!!!!!!!!!!!!!! SJÁIÐ ALLIR SAMAN ÉG BJÓ TIL KLÓSETT OG ÉG SKEITT ÞAR OG STURTAÐI EKKI NIÐUR, og þetta get ég selt(án gríns) fyrir nokkra milljónir punda. Fór á gallerý sýningu með Sono og vinkonu hennar Gill í Lancaster með málverk eftir einhverja kvensu sem var föst í 9 áratuginnum og líklega ennþá hlustandi á Annie Lennox, Human League og Madness og var hún að selja málverkinn fyrir 1000 pund upp í 10000 pund og það sem fór í taugarnar á mér var það að þetta voru skítamálverk og kostuðu líklega ekki meira en 50 pund til að mála! En útaf því að einn merkissnobbhaus sagði að þau "....væru svo listræn og barnaleg og svo svo svo svo svo uhhhhhhh mikið af litum." Já vinurinn Grænt, Blágrænt, dökkgrænt og nei sjá ljósgrænt.

"... skjóttu mig í nó-ó-ó-ó-ótttttt..."

-------------------------------------------------------------------

Plata vikunnar The Headless Cross með Black Sabbath

mánudagur, febrúar 14, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Mér svona datt það í hug líka:



I am 97% loser. What about you? Click here to find out!

fimmtudagur, febrúar 10, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Hahahaha náði hærra stig en þú Jónas. Njanjanjanja.


I am nerdier than 79% of all people. Are you nerdier? Click here to find out!


Annars er það að frétta að ég er að fara í viðtal fyrir nýja vinnu og ég er að taka námskeið Basic food hygiene

föstudagur, febrúar 04, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Mér finnst andskoti gaman af því að baka brauð, sérstaklega með mikið af fræjum og á Mánudaginn var bakaði ég tvær brauðshleifar stúttfullar af fræjum sérstaklega Hampfræjum(Cannabis Sativa) og Poppy fræjum(sem gerir Opíum) þýðir þetta að ég ætli mér að rækta þetta? Nei, en þetta er bara svo andskoti hollt að borða, en ég skil ekki af hverju það má borða hampfræ en ekki sá þau og af hverju virka efnið
Tetrahydrocannabinol er núna hægt að kaupa í töflu formi og selt löglega en það er ólöglegt að rækta og reykja Cannabis! Getur einhver útskýrt þetta fyrir mig?

laugardagur, janúar 29, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo
Namu-Myoho-Renge-Kyo

Ekkert svosem að frétta en mig langar nú vara til að skrifa um hvað hefur komið fyrir hana Kaitlyn. Hún Kaitlyn Björg hefur nú þjáðst af Eczema sem hefur gert lífið okkar leitt og fékk hún það fyrst þegar hún var 1 mánaða gömul og með því fékk hún húðlýs(Scabies) og og fékk hún sýkingu með því sem gerði nú bara aðstæðurnar verri. Fengum við fúkalyf sem gerðu sitt gagn og svo notuðum við sérstakt krem til að drepa lýsnar sem virkaði líka en hún var samt með mjög þurra húð sem fór víst í taugarnar hennar og ákváðum við að nota ólifolíu á hana sem virkaði mjög vel og eftir u.þ.b. mánuð þá varð bakið hennar frábært.

En þegar hún varð 6 mánaða þá fékk hún vatnsblöðrur á hægri fætinum og var hún alltaf að nudda fæturnar saman og var að vakna með 2 tíma fresti sem fór nú soldið í skapið. En við héldum í vonina að þetta mundi nú bara hverfa... en nei eftir u.þ.b. 2 mánuði þá ákváðum við að baða hana með sérstakri baðolíu sem kallast Oilatum sem virkaði ekki nógi vel og fékk hún eczema um axlirnar og enni, og einn vinur okkar sagði að hann dóttir hans þjáðist líka af Eczema og hann hafi notað haframjöl í baðið sem virkaði mjög vel að hans sögn. Þannig við byrjuðum að nota haframjöl í böðin hennar Kaitlyn og ólifolíu á þá staði sem hún var verst til og útaf þessu svaf hún betur um næturnar sem var mjög gott, en húðin leit nú ekkert betur út þannig við tókum hana til Dr Graham sem gaf okkur sterakrem sem við vorum ekki mjög ánægð með en hann bætti við að við ættum bara að nota það þegar það versnaði.

Efitr þap fór hún Sono til Appleseeds sem er heilsumatarbúð hér í Ulverston og talaði við konurnar sem vinna þar og ein mældi með Chickweed krem og önnur mældi með að fara til homopata sem heitir Beth Moon.

Þannig hún Sono ákvað að kaupa þetta krem og taka Kaitlyn til hómópatans (smáskammtarlækni) sem gaf henni þrjár töflur af Psorinum 1M og þrjár töflur af Sulphur 1M... ... og sjá það virkaði!

Kaitlyn sefur nú yfirleitt 7 klukkutíma og oft meira. Sem gleður mitt hjarta. Því miður Vésteinn Smáskammtalækning virkar hvort sem þú trúir því eða ekki.

P.S.
Til hamingju Ísland ég öfunda alla sem fara á tónleikanna með Iron Maiden

miðvikudagur, janúar 26, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Mikilvægasti drykkurinn í þessum heimi og þeim næsta er án efa Kaffi ég held að ég drekki svona um og yfir 1 til 1.5 lítra af því á dag. Og ég er ennþá ekki búinn að fá hjartaáfall.
Það er núna komið yfir ár sían ég reykti síðast(Fyrir utan vindlarnir þegar Kaitlyn Björg fæddist og áramótin) en ég get nú ekki sagt að mér líði nú eitthvað betur.

Vill alþjóðlegan skatt til að fjármagna baráttuna gegn alnæmi Jamm hann er algjör snillingur ekki satt, Hann Sjakk Sírak og hversu margir jarðabúar mundu nú samþykkja það að verða skattlagði rétt einu sinni en? Fífl.

OG hér er annað fífl "Sharon: Heimsbyggðin gerði ekkert til að afstýra helförinni".
Og svo segir hann "...
sem gagnrýni Ísraela fyrir baráttuna gegn palestínskum vígamönnum vera hina nýju gyðingahatara". Sýnir nú hversu mikið hann hefur á milli eyranna.


The more I get to know people the more I like my imaginary dog.

laugardagur, janúar 22, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Hef verið að endurskipuleggja húsið upp og niður og nú er hún Kaitlyn með sitt eigið herbeggi, fyrir það þá svaf hún í okkar herbeggi sem var að leiða til allskonar vandræða sérstaklega þegar hún vaknaði annan hvern klukkutíma!!!! Einnig er sú litla komin með heilar 7 tennur og brosir nú alla daga, alla daginn.

En í gær var ég að horfa á Bill Bailey (sem flestir ættu nú að þekkja sem Manny úr þáttunum Black Books) á skjánum með stand-up sem hann kallaði Part Troll:


Og verð ég nú að segja að hann er algjör snillingur á sviðinu og ekki er hann bara góður grínist heldur er hann helvíti góður tónlistarmaður. Við getið nælt DVD-ið hérna.

þriðjudagur, janúar 18, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Jamm lífið hefur verið frekar strembið hérna á Englandinu, er að leita eftir nýrri vinnu því ég er orðin hundleiður á vinnunni sem ég er í núna. Ég get sagt margar hryllingsögur um þetta hjúkrunarheimili þar sem ég er að vinna en ég ætla mér ekki að gera það, ég segi bara það að HSSA er betri staður að öllu leyti.

Annars er nú allt gott að frétta frá mér, ég er ennþá svo andskoti ánægður með að fá netið aftur eftir 3 mánuði eða svo. ER er byrjaður að dánlóda eins mikið og ég get áður en einhver stöðvar mig.

Keypti í gær geisladisk með Meistara Jon Lord og fyrir ykkur sem vita ekki ver hann er; hann var organistinn í Deep Purple og samdi öll lögin á Deep Purple and Orchestra og er hann mjög mjög mjög góður lagahöfundur. En nóg um það diskurinn sem ég keypti heitir Pictured Within og er þetta coverið:



En þetta er svona neo-Klassísk tónlist sem fellur svo ljúflega í eyrun, góð melódísk plata sem er gott að chilla við með eitt stykki bjór.

Og eftir mikin þankagang þá hef ég komist að því að það mikilvægasta til að kaupa sér áður en maður gerist foreldri er góð sterk keðja og eyrnatappar., það er alveg ótrulegt hversu mikin hávaða börna geta skapað og hversu hratt þau skríða, og ég get með sanni sagt að maður veit EKKERT fyrr en maður eignast barn sjálfur.

miðvikudagur, janúar 12, 2005

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Eftir næstum 3 mánuði þá er ég loksins komið með netið. Jeyyyyyyyyyyyyyy.

Það verður enginn annáll fyrir 2004 en það mikilægasta sem kom fyrir:
3 Mai Kaitlyn Björg fæddist.
7 Águst Sono og ég giftumst.
29 Október kláraði ég námið í Umönnun.


Og bara svona til að vita þá er eég komin með nýjann e-mill: ingvar@judasdisciple.wanadoo.co.uk

mánudagur, desember 20, 2004

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Er að setja in fleiri myndir. Og ég fæ víst ekki ADSL-ið til baka fyrr en í janúar, helvítis bömmer. Og ég kemst ekki á Bekkjarpartýið og ef satt skal segja þá er mér nú nett sama, vildi nú samt að ég gæti haldið upp á jólinn með allri fjölskyldunni.

miðvikudagur, desember 15, 2004

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Allir metal-aðdáendur og þeir sem höfðu gaman af Pantera og Damageplan lesið þessa grein.

föstudagur, desember 10, 2004

þriðjudagur, desember 07, 2004

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Þetta fer verða fáránlegt. Einsog er þá get ég ekki farið á netið útaf því að BT(British Telecom) ákvað að slíta ADSL tengingunna mína, var víst villa hjá þeim en hvað með það ÞEIR EIGA EKKI AÐ GERA SVONA MISTÖK. Fávitar. O jæja þetta fer allt að koma. En núna er ég á Bókasafninu hér í Ulverston sem er nýbúið að laga til, veggirnir voru víst stútfullir af Asbestos. Og nú ætla ég nú að finna jólagjöf handa Sono, Hálfdan og Jill.

fimmtudagur, nóvember 25, 2004

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Það er margt sem ég sakna frá Íslandi. Sérstaklega Skyr með Rjóma, mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm nammi nammi nammi namm. Fiskibollur og Fiskibúðing frá Ora, Bjúga, Hamborgararnir, Pylsur, reyndar mest allt kjöt á Íslandi útaf því að kjötið hérna er ekki nærri því jafngott.

En hér er mesta krútt í heimi


miðvikudagur, nóvember 24, 2004

Namu-Myoho-Renge-Kyo

Já ef ég held að flestir Bretar mundu samþykkja þessa tillögu

"
Hópur þingmanna vill svipta Blair völdum"

En það versta er að það er enginn sem gæti tekið við eftir hann, sérstaklega blóðsugann Micheal Howard.