sunnudagur, apríl 27, 2003

ÉG HATA WINDOWS XP!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Hvar er Dabbi kóngur og af hverju er Ingibjörg talin vera leiðtogi í Reykjavík Norður. Síðast þegar ég vissi þá var Össur í 1. sæti þar.

föstudagur, apríl 25, 2003

Hey, hér eru tvö góð slagorð:
Davíð í herinn, og herinn burt.
Halldór í herinn, og herinn burt.

Ó hvað ég er sammála. En nóg um það.

Af hverju nennir fólk ekki lesa stefnskrár annara flokka? Einsog þegar það er talað um Frjálslynda flokkinn, þá er alltaf sagt að þeir eru bara úthugsaðir í Sjávarútvegsstefnunni. Hvað eru margir hérna sem eru að lesa bloggið mitt búnir að lesa stefnuskrá þeirra?

Öll þessi umræða sem ég hef tekið þátt í þá hefur enginn, ég segi það aftur, engin lesið Stefnuskrá sinna flokka hvað þá annara. Og ef það er spurt af hverju lestu ekki Stefnuskrá bara sem dæmi Samfylkingunni þá er iðulega svarað "Heldurðu að ég lesi slíka vitleysu?!?!?!" Hvernig veist að þetta er vitleysa ef þú hefur ekki lesið stefnuskrá þeirra?

Ég er eiginlega á því að sleppa því bara að kjósa. Þetta gengur ekki lengur út á Málefni heldur menn og það er iðulega farið í sandkassann þegar það er talað um stjórnmál(Besta dæmið er þessi maður. Málefnalegur upp að' vissu marki en er greinilega ekki búin að lesa stefnuskrá annara flokka(Og ég efast að hann hafi lesið sinn eigin)).

Bara sem dæmi um þetta í sambandi við ekki Málefni heldur Menn, þá er það auglýsingin hjá Samfylkingunni. "Kjósið mig útaf því að ég er með svo fallegt bros og ekkert lafandi úr klofinu"-auglýsingin. Hvað voru þeir að hugsa? Þetta á að sýna að hún er góður leiðtogi, að kannski mun það vara jafnaðarmaður verða Forsetisráðherra og svo framvegis. En hún höfðu ekki þau áhrif á mig. Heldur þvert á móti. Hún fældi mig burt.

Og nú er bara spurningin, Hvort á ég að kjósa:
X-F eða X-S. Eða bara sleppa því.

miðvikudagur, apríl 23, 2003

Binni. Ég ætla að láta einsog ég hafi ekki lesið þetta sem þú skrifaðir.
--------------------------------------------------------------------

þriðjudagur, apríl 22, 2003

Er búin að skipta um lit. Er þetta betra Binni minn?
Ég var að spjalla við samstarfskonur mínar um einelti, og mér til mikillar hryllingar heyrði ég að Goðsögnin um það að Gerendur sé með minnimáttarkennd er en við lýði.

Að fólk skuli trúa þessu er alveg ótrúlegt! Þetta er LYGI, gott fólk. Það er kannski, ég endurtek, kannski í mesta lagi 20-30% gerenda með minnimáttarkennd. 20-30% gerendra eru úr "óvirkri" fjölskyldu. Staðreyndin er sú að gerendur eru úr bara venjulegum fjölskyldum. Fengu sama uppeldi og flestir jafnaldrar sínir.

Þetta er staðreynd fólk og foreldrar verða að byrja á því að hugsa þetta vandamál upp á nýtt. Einsog Stefán Karl sagði/segir þá er vandamálið fyrst og fremst í heimahúsum. Þegar foreldrar heyra að barnið sitt sé að leggja einhvern í einelti þá verður sá einstaklingur að taka á því. Og trúa því en ekki segja "Nei, það getur ekki verið. Barnið mitt getur ekki verið svo vont." En kennara eru líka fyrirmyndir. Þetta er líka staðreynd. Ég vil benda á frábæra grein í Mogganum frá síðasta Sunnudegi. Þar er sálfræðingur að tala um að kennarar verða að taka leiðtogahlutverkið að sér í hverjum bekk. Einfaldlega útaf því að þá verður valdabarátta á meðal nemenda. Þetta er eitthvað sem við verðum að líta á. Og ég vil sjá fólk tala meira um þetta en það gerir.
-----------------------------------------------------------------------
Það hefur verið gaman að lesa viðbrögð fólks á bréfinu sem ég skrifaði til Guðmund Inga og fleiri. Það hefur verið alveg rosalega gaman að sjá að þeir sem hafa gagnrýnt þetta eitthvað að eitthverju leyti hafa verið fólk sem fóru aldrei í skóla hér. Hmmmm. Er þetta tilviljun eða hvað. Einsog Greifinn. Ef þú ert að lesa þetta þá get ég alveg lofað þér því að þetta var enginn úthúðun. Ef svo hefði verið þá hefði ég nefn fleiri manns og sagt ennþá meira og verið ennþá grimmari. En þetta með þessa sem ég nefni einkum "Einn ákveðin skólastjóri gagnfræðiskóla í Austur-Skaftafellsýslu" ætlarðu að segja mér að það er allt í lagi að það er skólastjóri í einum skóla sem ber enga virðingu fyrir nemendum?

laugardagur, apríl 19, 2003

Það eru nokkrir hlutir sem ég þoli ekki
Nr. 1 er. Verksmiðjuframleiddar hljómsveitir/tónlist einsog Backstreet Boys, N’Sync, Britney Spears o.s.frv.
Nr. 2 Heimskt fólk. Þessir sem halda að ofbeldi leysi allt(Nú eru þessir sömu að hugsa hann Ingvar Árni er bara aumingji að því að hann kann ekki að slást). Ef maður reynir að tala við þá vitrænt þá segja þeir “Á é’ a’ begja þi’?”.
Nr. 3 Skítkastara. Einsog póltíkusar-skítkastarar. “Sjálfstæðisflokkurinn er bestur, Samfylkingin er léleg útaf því að þeir.... þeir.... þeir....” Á alla bóga. Ég er mest að hugsa um að hætta við að kjósa.
Nr. 4 Froðhausar. Einsog þessir gaurar sem lömdu 4 Vestmanneyjinga útaf ENGU!!! Einn strákur byrjaði að rífa kjaft við einn af Vestmanneyjingunum og byrjaði að slást við hann. Hinir 3 hjálpuðu auðvitað vini sína. Síðan komu 25 froðhausar til að berja 4 stráka sem gerðu ekki neitt af sér nema að vera við land á Höfn!!!

Og svo margt fleira sem á eftir að koma í ljós hér í Blogginu mínu.

fimmtudagur, apríl 17, 2003

Er loksins kominn aftur með teljara.

Teljarinn frá Teljari.is var rusl. Já Rusl. Helvítis rusl og ekkert nema andskotans rusl. Það átti það til að eyðileggja heimasíður. Stöðvaði browsera til að hlaða þær niður og svo framvegis.
Þessi sem ég er með núna er líka miklu léttari fyrir HTML-body kóðann þannig það ætti ekki vera neitt vandamál.

En á á soldið vandamál með gömlu bloggin mín. Kannski einhver getur sagt mér af hverju þau vilja ekki sýna sig? Ég er búinn að rpublisha þau aftur og aftur og aftur og aftur og ekkert gerist AND*****NN.

Getur einhver aðstoða mig aðeins?

miðvikudagur, apríl 16, 2003

Ég var að horfa á stórmerklega mynd um daginn sem heitir The Big One eftir Michael Moore þar sem hann fjallaði um niðurskurð í BNA. Þar sem fyrirtæki sögðu upp 1000 manna og fluttu verksmiðjur sínar eitthvart annað, einsog Mexíkó og Indónesíu. Bara til að græða meiri pening. Einsog það sem kom fyrir í einum bæ(Sem ég er búinn að gleyma hvað heitir) þá var verkismiðja flutt þaðan(Þessi verksmiðja bjó til nammi einsog Pay Day) og um það bil 5000 manns sagt upp. Ástæðan var sú að fyrirtækið var í svo miklum gróða að þeir vildu flytja verksmiðjunna! Forstjórinn sagði ef þau hefðu grætt meiri pening fyrr þá hefðu þau flutt smiðjunna fyrr og hefði hún ekki grætt minna þá hefðu þeir ekki flutt hana. Alveg dagsatt. Ég er ekki að ljúga þessu.

En hugmyndin sem Michael Moore kastaði fram var þessi:

Hvernig væri ef það væru lög sem kveddu á að fyrirtæki mættu ekki segja upp starfsfólki þegar það er að græða pening?

Fyrir þá sem vilja útskýringu þá á ég ekki við einstaka starfsmenn heldur Fjöldauppsagnir. Auðvitað á að reka fólk sem eru latir en ég á við þewgar fyrirtæki eru í stærsta gróða sögu þess og reka síðan 50% starfsmenn bara til að græða meiri pening.

Skrifið í gestabókinna mína og segið mér endilega álit ykkar.

miðvikudagur, apríl 09, 2003

Hvað er að Unglingum hér á Höfn? Hvað á ég við? Lásuð þið Moggann? Ja hvað á ég að segja. Tökum dæmi. Það sem kom fyrir síðustu helgi. Sjófararnir sem fengu ekki frið fyrir þeim. Voru ekki að gera neitt nema að fá sér í glas á Kaffihorninu. Síðan kemur einn froðhaus(líklega einn af mínum fyrrverandi bekkjarfélögum) og byrjar að tala við og segja hversu góu, sterkur og myndarlegur hann er. Og þeir(Sjófararnir) trúa honum ekki. Hann verður reiður. Hann byrjar að berja. Og síðan koma fleiri og byrjar líka að berja. Þeir vita ekki af hverju þeir bara sjá slagsmál og verða að taka þátt í því. Löggan kemur reynir að hjálpa en það tekst lítið. Þeir fylgja þeim að skipi þeirra. But low and behold Hverjir eru að bíða. Froðhausarnir(The Gangs of Hornafjörður) bíða eftir þeim .Þeir vita ekki af hverju þeir eru að bía eftir þeim þeir vita bara að þeir vilja slást, en þeir vita ekki heldur af hverju þeir velja berja þessa sjófara.

Og fólki finnst skrýtið af hverju fólk vill helst ekki koma til Hornafjarðar að skemmta sér? Nú útaf þessum helvítis Froðhausum.

Síðan var brotist inn í Olís og Íþróttahúsið. Til hvers? Þarna eru froðhausarnir greinilega líka að verki.

Þetta minnir mig á þegar einhver/jir brutust inn í Líkhúsið?

Eitt orð hálfvitar sem halda að ofbeldi sé svar við öllu. En þetta sýni bara hversu heimskir þeir eru fyrst þeir halda að ofbeldi leysi allt.

þriðjudagur, apríl 08, 2003

ÉG ákvað að taka "Fokkaðu þér"-strákinn úr gestabókinni. Einfaldlega útaf því að hann/hún sýndi þarna annaðhvort heimsku sína eða/og óþroska. Og hann/hún er geta ekki lengur skrifað í gestabókinna. Þetta er gert fyrir þig "Fokkaðu þér"-einstaklingur. Bara svo þú munt ekki sýna fólki hversu buxnalaus þú ert.

sunnudagur, apríl 06, 2003

Ég heiti Ingvar Árni Ingvarsson, áhugamálin mín eru tónlist, tölvur, bækur og trúarbrögð. Ég er af holdi og blóði. Ég verð ekki endurnýttur sem klósettpappír.

laugardagur, apríl 05, 2003

Ég skil ekki fólk sem heldur að það sé svo sniðugt og reynir að móðga mann. En endar á því að sýna sinn eigin (ó)þroska. Þessi "Fokkaðu þér" ég viet hvert IP-númerið þitt er þannig ég get fundið út hver eða hvaðan þú skrifaðir þetta. :o)
Rosalega eru margir óþroskaður hér á Höfn. Kíkið ágestabókina mína. Einhver einstaklega óþroskaður(líklega svona um 14-16 ára) skrifaði ekki neitt en kallaði sig "Fokkaðu Þér". Kæri hver sem þetta var. Viltu læra íslensku. Og kannski líka ensku í leiðnni. Á íslensku er þetta "Ríddu þér" og á ensku er það "Fuck You". Það er ekki til neitt orð sem er fokkaður þér.
Ég las Eystrahorn um daginn einsog allir aðrir á Höfn og mér til ómikillar ánægju þá sá ég að Galdur notuðu Prentsmiðju Hornafjarðar. Þannig þeir ætla að framfylgja því sem þeir byrjuðu á Haukur í Horni. En það hefði ekki komið mér á óvart ef þeir hefðu notað Prentmet og ekki Verslað í eigin heimabyggð.

miðvikudagur, apríl 02, 2003

Ragnheiður. Þú færð ekki þessar rósir eftir það sem þú gerðir mér um daginn.
Jæja nú er ég búin að fá mér nýja gestabók. Þessi er með þann skemmitleg fídus að ég get eytt burt kommentum sem eru barnalegar eins þessi hérna um daginn þegar einhver sagði undir nafnleysi(Sem ég sé bara sem heigulshátt):
"þú getur bara verið sjálfur getulaus og allt þetta...!"

V'A ENN HVAÐ Þ'U ERT ÞROSKAÐUR.

þriðjudagur, apríl 01, 2003

Það er alltaf gaman að sjá hvað fólk getur verið óþroskað. Eða var þetta kannski Gvendur Ingi sjálfur?

mánudagur, mars 31, 2003

Kindin Einar. Ég hef litið í minn eigin barm og ég sé eftir öllu sem ég hef gert öðrum. En þetta er einmitt ástæðan fyrir því að ég tala um það. Engin á skilið að lenda í þessum sporm, mínum, þínum eða einhverra annara. Einelti er Lose-Lose astæður. Allir tapa á því enginn græðir.

En hér kemur höfuðverkurinn. ég veit ekki hver þú ert. Mig grunar hver þú gærir verið.

sunnudagur, mars 30, 2003

Alveg ótrúlegt. Ég trúði ekki mínum augum né mínum eyrum. Einn af mínum bestu vinum hér áður fyrr var í Söngvarkeppni Framhaldskólanna. Hann Flosi Ófeigsson. Og það sem kom mér mest á óvart. Rosalega söng maðurinn vel. Alveg rosalega hrein og tær rödd. Hann átti allavega skilið 3. sæti.

GO FLOSI
Alveg ótrúlegt. Ég trúði ekki mínum augum né mínum eyrum. Einn af mínum bestu vinum hér áður fyrr var í Söngvarkeppni Framhaldskólanna. Hann Flosi Ófeigsson. Og það sem kom mér mest á óvart. Rosalega söng maðurinn vel. Alveg rosalega hrein og tær rödd. Hann átti allavega skilið 3. sæti.

GO FLOSI

laugardagur, mars 29, 2003

Ef þeir á Horn.is halda að þetta stöðvi eitthvað þá eru þeir að misskilja eitthvað. Ég veit að Siggi Mar styður heilshugar baráttuna gegn einelti. En ég veit líka að samstarfmaður hans hefur stutt heilshugar þá sem leggja í einelti.
Einsog Jói þá skammast ég mín líka fyrir að vera á þessum lista.

Hverjir hér hafa tekið eftir því að meiri hlutinn af þessum löndum eru að einhverju leyti styrkt af BNA?

En hvernig getur BNA eiginlega styrkt svona mörg lönd. Þegar efnahagurinn er í rúst og Þeir skulda S.Þ. fleiri hundruð Milljarða?
Þetta er gaman. Þetta þýðir einfaldlega að þeir aðstandendur Horn.is eru hræddir við umræðu sem fer fram á öllum heimilum á Hornafirði:

"Umræðunni lokað
Í kjölfar umræðna sem verið hafa á horn.is í dag og í gær, hefur verið ákveðið að loka umræðunni um óákveðinn tíma.
Ákvörðun þessi hefur ekkert með skoðanir aðstandenda horn.is að gera. Vefnum er ekki ætlað að vera vettvangur fyrir ásakanir á nafngreinda einstaklinga."

Ásakanir?!?!?!?! Þetta eru engar ásakanir. Og þetta var alls ekki meiðyrði. Þetta var sannleikurinn sem einhver þurfti að gubba útúr sér.

föstudagur, mars 28, 2003

Sumu fólki fannst það gróft að ég nefndi nöfn þeirra sem ég er að gagnrýna! HA?!?!?! Það yrði semsagt allt í lagi ef ég hefði sagt "Þessi tiltekni skólastjóri Gagnfræðisskólans í Austur-Skaftafellssýslu" "Þessi tiltekni aðstoðarstjóri Gagnfræðisskólans í Austur-Skaftafellssýslu" "Þessi tiltekni bæjarstjóri bæjarins við hornafjörðinn"?

HA?

Einhver hefði byrjað á þessari umræðu hvort sem það hefði verið á Horn.is eða einhvers staðar annars staðar. Sorry Siggi Mar og Heiðar en það er staðreynd.
Það er eitthvert fokk upp í gangi á síðunni. Ég veit ekki alveg hvað er að en ég skal reyna að finna það út.

Some fackin' numbahs and some fackin' lettahs

Ingvar
Hey frábært. Þeir á Horn.is hafa sett nafnið mitt aftur í Heimasíður Notenda og í Notendaskránni. En hafa tekði umræðunna burt!!!! En þeir sniðurgir.
Frábært. En hvað lífið er yndislegt.

Þeir félagar í Galdur ehf. Hafa að ég held bannað mig á Horn.is. Jahá. Semsagt ef maður opnar munninn um eitthvað viðkvæmt, eitthað sem allir eru að hugsa, margir tala um, en enginn þorir að viðurkenna að þeir hugsi.

Albert var getulaus skólastjóri. Þetta er sannleikurinn alveg einsog Stalín myrti milljóna manna útaf sinni eigin móðursýki eða Saddam er harðstjóri og sjónvarpið er tæki djöfulsins. Hann gerðir aldrei neitt í því þegar krakkar voru lagðir í einelti. Satt bara í skrifstofu sinni og var að undirbúa alþingis-kosningarbaráttu sína.

Guðmundur Ingi er í sjálfu sér lítill Stalín. Maður sem á ekki skilið að stjórna skóla. Það var einn sem sagði í umræðunni á Horn.is að ef Guðmundur Ingi hefði ekki verið skólastjóri í Heppuskóla þá hefði ekki verið neinn agi. Æji greyið skjóttu þig. Trúir þú þessu virkilega? Agi getur verið góður. En aðferðin til að aga einhvern eða ná aga í skóla getur verið betri en þessi sem Guðmundur Ingi notaði. Hann niðurlægir nokkra krakka á ári. Velur sér fórnarlömb. Bara til að sýna hinum krökkunum hvernig hann gæti farið með þau.

Einn stjórnandi Horn.is sendi mér tölvupóst til að segja mér að hann hefði upprætt umræðunni. En af hverju sagði hann ekki líka að hann hafði tekið mig úr notendaskránni? Af hverju var ég tekin úr notendaskránni? Viltu Segja mér það Sig....

Annars grunar mig líka að hinn stjórnandinn sé með samviskubit yfir því hvernig hann fór með Svavar(bróðir minn) í skólanum. Hei... hvað segir þú um það? Líður þér vel yfir því hvernig þú og félagar þínir fóru með Svavar?

fimmtudagur, mars 27, 2003


Í tilefni þess að í kvöld(27.03.03) verður sýndur heimildarþáttur sem ég tók þátt í. Þ.e.a.s. það var tekið viðtal við mig. Ég er með nokkrar tillögur um hvernig mæti bæta það hérna. Og láta fyrrverandi nemendum líka líða betur.

Ef það á að uppræta einelti þá verða kennarar byrja að líta í eigin barm. Þetta gengur ekki lengur. Og það er ekki nóg að gera kannanir og gera síðan ekkert. Þótt að kannanirnar sýni ekki góða niðurstöðu. Og það er alls ekki nóg að bara tala við gerendur ÞAÐ VERÐUR AÐ GERA EITTHVAÐ Í ÞESSU.

Fyrsta tillagan mín er þessi. REKA GUÐMUND INGA. Já ég sagði það nú er það opinbert það sem allir og ég meina ALLIR eru að hugsa. Guðmundur Ingi þú ert hálfviti. Þú eyðilagðir sálarlíf allra minna bræðra og þú hefur ekki beðist afsökunar! Það á að reka þig úr þessari stöðu og ráða einhvern hæfari. Öllum foreldrum kvíða fyrir því að senda krakkanna sína í Heppuskóla. Sumir mundu frekar vilja senda þau til Djúpavogs. Þau vita hvað þetta skrímsli hefur gert. Já ég meina skrímsli. Guðmundur Ingi hvernig býst þú við því að fá virðingu þegar þú berð ekki virðingu fyrir nemendum? Þú átt enga virðingu skilið. Þú átt enga viðurkenningu skilið. Og þú skalt biðjast afsökunar til þeirra nemenda sem þú hefur náð að rústa eyðileggja af líf og sál. Og hérna er símanúmerið hjá einum bróður mínum, honum Svavari, það er 661-4034. Hringdu núna. Þú átt að biðjast afsökunar. Ef þú þorir því. Þú getur ekki ímyndað þér hvað ég er reiður, hvað ég er fúll og svekktur og það eru fleiri. Og nú eftir nokkur ár þori ég loksins að segja hvað liggur mér á hjarta. Þú reynir ekki að hjálpa nemendum. Þú dýrkar bara þá sem er góðir í dönsku. Þeir sem fá lægra en 8 fá enga hjálp frá þér. "Útaf því þeir eiga það ekki skilið."ertu örugglega segja við sjálfan þig. Þú sem kennari átt að uppörva nemendur ekki niðurlægja þá.

Magnús J. Magnússon. Þetta á líka við þig. Ef þú vilt að aðrir beri virðingu fyrir þér þá skalt þú gjörasvovel og gera það sama og bera virðingu fyrir þeim. Í staðinn fyrir að gera grín af þeim. Ég man eftir einum nemanda sem þurfti að nota sérstök gleraugu, sem voru fjólublá, til þess að lesa. Það fyrsta sem þú gerðir var að gera grín af þeim. Og hann hefur ekki þorað að nota þau eftir það. Þetta hef ég eftir móður hans.

Önnur tillagan mín er þessi:
Stefán. Fyrrum aðstoðarskólastjóri Heppuskóla. Þú átt að byrja að hugsa sjálfstætt frekar en að hlusta á Guðmund Inga. Og ég veit að þú gerðir þetta sama við nemendur hér áður fyrr. Niðurlægðir þau og ég veit ekki hvað annað.

Ég er stoltur yfir því um hvernig það gengur í Hafnaskóla. Hafnarskóli er til fyrirmyndar um hvernig á að takast á við einelti. Það er kannski ekki búið að uppræta einelti en það er mun minna en það var þegar ég var þar.
Og eina ástæðan fyrir því af hverju það gengur svona vel núna er útaf því að Albert fór og Arnbjörg kom inn. Albert þú gerðir aldrei neitt í þessu. ALDREI. Sama hvað margir komu til þín og sögðu þér frá því hvað væri að gerast þá sagður þú alltaf "Ég skal gera eitthvað í þessu.", síðan beið maður og vonaði en ekkert gerðist. Ég var hræddur um mitt eigið líf þegar ég var í Hafnarskóla undir þinni stjórn. Ég átti þetta ekki skilið. Og þetta skrifa ég með tár í augun. Ég og aðrir áttum þetta ekki skilið. Einsog er talað um í heimildarþættinum þá halda foreldrar að skólinn sé öruggt umhverfi en svo er ekki. Alls ekki.



Þetta er kannski ekki uppörvandi. En ég þurfti að koma þessu frá mér. Ég var að kafna.

Ég vil fá að sjá breytingu á þessu sem allra fyrst.



Virðingarfyllst,

Ingvar Árni Ingvarsson

P.S.
Ef þið viljið fræðast um einelti þá getið þið skoðað heimasíðu mína FUME
Ég er í sjónvapinu í dag!!! Ég kem fram í heimildarmynd um einelti. Einelti - Helvíti á Jörðu. Kl 20:10.
Það var reynt að brjótast inn í tölvunna mína í gær. Einhver hálfviti gerði fjórar tilraunir í að reyna að brjótast inn í tölvunna mína!!! Ip númer 80.225.134.151. Sá reyndi að brjótast inn í tölvunna mína. Komdu á Hótel túnið á morgun kl 16:30. Ég þarf að sýna þér löngutöngina mína.

þriðjudagur, mars 25, 2003

Gaman þetta stríð. Bretar og Kanar eru eitthvað fúlir út í Írösku þjóðinna. Það var í fréttum í gær að ég held. Þeir eru hissa á því að Íraskir borgarar fagni ekki komu þeirri. Hylli þá sem frelsishetjur og þess háttar. HISSA. Hvað í andskotanum bjuggust þeir við? Sömu viðbrögð og Jesús fékk á pálmasunnudegi? Fat fuckin' chance. í fréttum var líka tekið viðtal við nokkra Bagdadbúa sem eru reiðir, ég endurtek REIÐIR, útí Kana og Breta. Þeir sprengdu upp íbúðarhúsnæði sem höfðu enga hernaðalega mikilvægi!!!! Ég mundi drepa næsta hermann sem ég mundi sjá. Ég yrði ekki reiður ég yrði brjálaður.

Allir sem kunna að lesa ensku ættu að skoða heimasiðu Micheal Moore. Frábært bréf sem hann skrifaði til Gogga Busk.

Eitt um Írak. Það er veri að segja að Saddam kúgi þjóð sína. Nei hann gerir það ekki rassgat það er aðalega sonur hans Uday(eða Qusey) sem á það til að drepa, nauðga og berja þann sem hann vill. Það er Baath flokknum að þakka að allt gekk svona andskoti vel í Írak. Konur t.d. hafa meira frelsi þar en nokkru öðru Miðausturlandi. Þær fá að læra það sem þær vilja, vinna við það sem þær vilja, Kæra karlmenn fyrir nauðgun, kæra karlmenn fyrir hitt og þetta, Þær fá að ganga í þeim förum sem þær vilja og svo framvegis. Allir voru með sömu réttindi. Allir voru frjálsir og svo framvegis. Síðan kom stríðið við Íran. BNA voru mikið í því að selja Írak vopn og mikið af þeim, og ég tel þar með Efnavopn. Og síðan eru þeir að ásaka Rússa fyrir að selja Írökum? Þar fór allt í háaloft. Á meðan BNA voru að selja vopn til Íraka þá voru þeir að gefa Írönum gervihnattarljósmyndir af Írak. Hvar væri best að ráðast á þá o.s.frv. Þetta sem ég segji er satt og sannað. Sorry. Það þýðir ekki að deila við mig um þetta. Síðan var það Persaflóa-stríðið Goggi Busk eldri, það sem hann hafði sem Goggi Busk yngri mun aldrei hafa eru gáfur. En hann laug að sínu fólki um skattalækkanir og þess vegna féll hann.

Það sem eyðilagði Írak var ekki Saddam í sjálfur sér. Það var þetta viðskiptabann sem er búið að standa í 12 ár! AF hverju fjarlægðu þeir ekki Saddam eftir Persaflóa-stríðið. Var það svo þeir gætu fengið góða ástæðu til að ráðast á þá aftur? Svarið þið þessu fyrir ykkur sjálfum.

mánudagur, mars 17, 2003

Blessað verði fólkið. Nú er ég loksins komin með tölvu. Ég fékk sendingu frá bróður mínum sem saman stóð af Móðurborði, kassa og skjákorti. Þannig ég setti þetta saman. Ég átti skrifara fyrir þannig þetta var fínt mál. Síðan reyndi ég að koma Módeminu í gang. Þá fékk ég höfuðverk. Jesús Kristur. Það tók held ég 2-3 daga að reyna koma því í gagnið. Fyrst fékk ég módem frá vini mínum honum Baldri Bjarnasyni. Ég hélt að eitthvað væri að því þannig ég hringdi í Baldur og bað hann um að koma yfir. Hann reyndi allt og sagði síðan að módemið væri líklega ónýtt. Næsta dag fór í MARtölvuna og keypti módem. Fór heim sæll og glaður. Setti hana í tölvuna. Og hún virkaði ekki. AAAAARRRGGGHHH Ég fór með tölvuna í MARtölvuna og hann Stéfan tékkaði. Og það var allt í lagi með módemið hún tengdi sig við netið hjá honum og allt í fína. Ég fór með tölvuna aftur heim. Og reyndi að tengja hana við netið. Neipp ekkert. Þannig ég hringdi í Bilanir hjá Símanum og þeir skönnuðu línuna og það var einhver tæknibilun hjá mér. Ókei kannski það er vandamálið. Næsta dag voru gerðar fleiri skannanir og það var einn síminn sem var bilaður. Og tók hana af tenginum og samt vildi helvítis(Fyrirgefðu Ragnheiður) tölvan ekki tengja sig. Og seinna um kvöldi fattaði ég hvað var að. Síminn minn var tengdur þannig að ef ekki var svarað eftir 30 sekúndur þá var hringingin millifærð í TALhólfið mitt. Og sónninn var eitthvað öðruvísi. ÞAnnig ég tók þá millifærslu burt og Voila. Tölvan kommst á netið. Módemið þekkti ekki sóninn. AAAAAHHHHH.

fimmtudagur, mars 06, 2003

Þið sem eruð að lesa þessa síðu. Þá vil ég biðjast fyrirgefningar á því að ég hef ekki skrifað neitt í háans herra tíð.
Málið er það að mig vantar tölvu heima fyrir og tölvann út í vinnu er búinn að gefa upp öndinna.
En ég fæ tölvu eftir nokkra daga þannig þið verðið að bíða örlítið.

mánudagur, febrúar 17, 2003

Eitt um Lord of the rings: The Two Towers. Ameríkanar eru alveg stórskýtnir. En það vita nú allir. En um þessa mynd. Mjög margir Kanar vildu láta breyta titlinum í eitthvað annað. útaf því að þeim fannst þetta vera sót á 9/11!!!! Rosalega eru þeir eitthvað viðkvæmir fyrir öllu svona. Hvað í andskotanum er að þeim? Og síðan er verið að segja að Sarúman er skuggalega líkur Osama Bin Laden!!! Afsakið en er það kannksi mín villa. Var ekki byrjað að búa til myndinna áður en atvikið þann 9.11.01 kom fyrir? Ekki veit ég nú annað.

En nóg af mínu kjaftæði. Þessi mynd var fullkomin á alla staði. Tækmnibrellurnar. handritið, leikurinn, bara bókstaflega allt saman. Við Sono vorum sammála að þetta var sko peninganna virði. Og heilir andksotans 3 tímar!! Og aldrei leiddist manni. Ég ætla mér að sjá hana aftur mjög fljótlega.

laugardagur, febrúar 15, 2003

ÉG fór í bío með Sono, til að horfa á Lord of the Rings: The Two Towers. Djöful er þessi mynd góð. Þetta er sko bíó-reynsla einsog hún gersti best. Alveg frábær. Sérstaklega atriðið við Helm's Deep. Ein besta mynd allra tíma. Og besta orrusta-atriði allra tíma enginn spurning.

fimmtudagur, febrúar 13, 2003

Þetta líst mér mjög vel á.
"Hálfur milljarður í Almannaskarðsgöng
Meðal þeirra verkefna sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að setja fjármagn í er gerð gangna undir Almannaskarð. Vegna meira atvinnuleysis og meiri slaga en búist var við ákvað ríkisstjórnin að verja 6,3 milljörðum króna til vegaframkvæmda víðsvegar á landinu. Að auki verða 700 milljónum varið í atvinnuátak á vegum Byggðastofnunar. Fjármagnið fæst með því að selja á markaði öll bréf ríkisins í Búnaðarbanka og Landsbanka og Íslenskum aðalverktökum.

[Til baka] [Prenta frétt] [Senda frétt]"

Tekið frá horn.is

miðvikudagur, febrúar 12, 2003

Já það er alveg rétt hjá henni Ragnheiði. Ég er eitthvað hugmyndasnauður þessa daganna. Ég nenni ekki að tala um Írak. Einfaldelega útaf því að sá eini í ríkistjórn BNA sem er með viti er hann Colin Powell. Loksins, loksins fengu Bandaríkjamenn mann sem forseta sem líktist meðalmanninnum í BNA. En ekki veit ég nú um marga Bandaríkjamenn sem mundu gleyma að tyggja. Einsog vitringurinn Bush gerði með salthringinn sinn.

föstudagur, febrúar 07, 2003

Það var kvartað um það að ég skrifaði ekki nóg í síðunna mína. Þannig. Ragnheiður þetta er fyrir þig:
BlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBlaBla

ER þetta nógu gott fyrir þig Ragnheiður mín.

laugardagur, febrúar 01, 2003

Nú er ég pirraður. Það nýjasta nýtt frá Apakettinum í Hvíta húsinu í Washington D.C. Þessi argast hálfviti segist ætla að nota kjarnorkuvopn ef þess "þurfi". Já einmitt er þetta ekki sami maðurinn sem vill að Írak afvopnist? ég bara spyr

fimmtudagur, janúar 30, 2003

Jæja þá er ég búin að laga þetta með síðunna mína. Það var táknið "_" sem var vandamálið. En nóg um það.

Um daginn hringdi löggan í mig frá Kópavogi. Og ég var með fjarvistasannarir fyrir ölla. Ég var á Íslandi 11 september 2001 og ég var bara 3 ára þegar Olaf Palme var myrtur og auk þess var ég líka á Íslandi þá. Þeir voru að leita af alnafna mínum. Það eru bara tveir á landinu sem heita Ingvar Árni Ingvarsson en það er bara einn í símaskránni(ég). Og hinn var síðast þegar ég vissi í fangelsi. Fyrir dópsölu og dópeign. Og hann átti þátt í stóra Fíkniefnamálinu hér fyrir nokkrum árum. Og hann er fæddur 06.04.76. Ég er fæddur 27.09.83. Þannig þarna slapp ég við fangavist. Líka það að ég var á Íslandi 11 september 2001 og ég var bara 3 ára þegar Olaf Palme var myrtur og auk þess var ég líka á Íslandi þá. Þannig konan(Sem heitir Drífa að ég held) fann enga ástæðu til að setja mig í fangelsi.

þriðjudagur, janúar 28, 2003

Afsakið fólk. En ég er að reyna að laga eitthvert próblem með síðunna. PROXY-serverar vilja ekki sýna síðunna.

laugardagur, janúar 25, 2003

Ég vil votta samúð mína til fjölskyldu hans Guðmundar Sigurðssonar.

Það var gaman í fréttum sérsaklega um the x-father. Hann var að borga meðlög fyrir krakka sem hann átti ekki. Og honum var synjað um endurborgun. Bittu nú. Þetta var ekki krakki hans, hann var að borga eðlag í krakka sem hann hélt að væri sinn. Og síðan var framkvæmt DNA-rannsókn og hann komst að því að krakkinn var ekki hans. Þannig hann þarf ekki að borga meðlag. En hann fær ekki borgað til baka!!!! Ég endurtek. Hann átti ekkert í barninu og Innheimtusjóður Bæjarfélaga ætla að taka ákvörðun um að hvort það eigi að borga eður ei í næsta mánuði.

Við lifum í svo sannarlega í skrýtnu landi. Með skrýtin forsetisráherra.

mánudagur, janúar 20, 2003

Það er gaman að heyra/lesa/sjá fólk skjóta sig í fótinn. Hún systir mín(Alexandra þeas) sagði um daginn að henn finnist Fannálar vera fáránlegir. Og sjá hvað hún skrifar í gestabókinna mína!!!

01/18/03 15:08:32 GMT
Name: Alexandra MY URL: Visit Me
My Email: Email Me Location: Höfn
Comments:
this is a cry for help!!!!! ég er að fá mér nýtt blogg... en ég veit ekki rassgat hvernig ég á að gera þetta! hjálp?

Jæja kæra systir. Hver er slóðin hjá þér?

P.S.
Viljið þið sem ekki eruð búin að skrifa í gestabókinna gerið það hérna

sunnudagur, janúar 19, 2003

Hverjir styðja þá tillögu að hafa veiðitímabil yfir lögfræðinga, alþingismenn, Gunnar í krossinum, Snorra í Betel og Leoncie?
Nú ætla ég að skrifa um lífrænt og ólífrænt ræktaða hluti. Þetta er nefnilega eitt sem ég skil ekki. Af hverju lífrænt er dýrarra en ólífrænt. Pælið í því. Það eina sem þarf að gera fyrir lífrænt er að planta niður fræum(eða laukum). Frá A til Ö þá er allt lífrænt. Á þessum plöntum er ekki notuð nein eiturefni. Áburðurinn er yfirleitt tað(Kúa- eða hrossatað). Og ekki borða nú dýrin eitthvað ólífrænt(Svo ég viti alla vega) Og síðan kosta nú sólin og rigningin peninga.

En ólífrænt. Þar eru notuð eiturefni, ólífrænan áburð, rafmagn og mikið og stórt staff. Þannig ég spyr af hverju er lífrænn matur dýrarri en ólífrænn?

þriðjudagur, janúar 14, 2003

jæja þá er ég búin að uppfæra tölvunna nógu mikið. Fékk skrifara(48x12x50x) í gær frá Elko. Og ég uppfærði Örgjafan. frá 500 MHz í 633 MHz. Og vinnsluminnið frá 64 Mb í 320 Mb. Life is gúd

fimmtudagur, janúar 09, 2003

ÉG er nú alveg sammála Helgu um Gettu Betur. Nemendaráðið á ekki að semja spurningarnar! Sorry en staðreyndin er sú að hún mamma(Guðný Svavars) er sú eina sem veit eitthvað um Gettu Betur. Nemendaráðið átti að biðja mömmu og/eða Zoffa að búa til spurningarnar! KROSSASPURNINGAR!!!!!!!!!!!!!!!! Hvað var nemendaráðið að hugsa?

En það er eitt sem FAS á að gera. Og það er að byrja að velja í lið helst á Haustönninni og byrja æfingar þá! Ekki vera alltaf á síðustu stundu. Það gengur ekki og það er bara örugg uppskrift á tap í 1. umferð.

En ég mæli með Helgu Luciu í liðið. Hún á að vera í liðinu.

En um söngvarakeppnina. Við eigum jafnmikla möguleika á því að vinna og önnur lið það er alveg fullt af hæfileikarum söngvurum í FAS. Okei kannski ekki mikið af söngvurum en mjög mikið af söngkonum.

But anywho GO FAS

þriðjudagur, janúar 07, 2003

Í dag er ég stoltur. Eiginkonan. Hún Sono er búin að fá sér FANNÁL. Fyrir þá sem eru með áhuga farið á Lotus Flower.
Kæra Bryndís. Nei ég tók því ekki illa. Ég var bara að segja mína hlið. Og ég veit að þú getur verið smámunarsöm. Ég meina þú ert í leikfélaginu. Og ert alltaf hinum megin við sviðsljósið. Og þeir sem eru þar eru oftar en ekki smámunarsöm. Gleðilegt ár og sömuleiðis.

mánudagur, janúar 06, 2003

Jæja. Ein í gestabókinni var að kvarta yfir stafsetningarvillum. Elsku Bryndís. Málið er það að ég skrifa bloggið og sendi það. Og tek þá eftir villunum og ég bara nenni ekki að laga þær. Og ég er oftast að flýta mér. Einfaldlega útaf því að ég skrifa þær í vinnunni og þá hefur maður ekki mikin tíma til að laga allar villurnar.

sunnudagur, janúar 05, 2003

ÉG hef tekið eftir því að næstum allir Bloggarar sem ég les daglega hafa skrifað um hvað hefur komið fyrir þá á síðasta ári. Fyrir mig hefur þetta verið nokkuð erfitt djobb en ég skal samt reyna.
Fékk vinnu í Janúar á HSSA. HeilbrigðisStofnun SuðAusturlands í umönnun(Skeina gömlu fólki og því um líkt).
Flutti frá foreldrahúsum í Febrúar. Bý nú á Miðtúni 8 fyrir ofan ömmu. Þannig það er ekki mikil breyting. Og lék í Gísl sem Rio Rita erki-hommi(Hvað er þetta með homma hlutverk og ég... er einhver að segja mér eitthvað).
Fékk mér kettling í Mars sem heitir Tigger. Ekki Tiger. Og Stórt rúm.
Trúlofaðist í Apríl(Stelpu)(Ekki til að sanna að ég sé ekki hommi. ÉG ER EKKI HOMMI).
Maí - Júní-Júlí. Ekkert sérstakt.
Águst. Byrjaði að blogga
September.Fórum á Búddista-námskeið þann 21-22 á Hellu, það var voða gaman hitt fólk sem ég hafði ekki hitt í 2 ár. Við Sono ætluðum að giftast þann 26. En þurftum að fresta því útaf pappírum.´Við þurftum að fá pappír sem er nefndur Certificate of No Impediment. ÉG nenni ekki að útskýra hvernig það átti að ganga fyrir. Og foreldrar Sono komu til landsins sem var kraftaverki líkast. ÞAð tók 11 mánuði að sannfæra David um að koma. Og þegar við loksinis ákváðum hvernær við ætluðum að giftast þá keypti hann upptökuvél fyrir 700 pund eða 97300 krónur. Þetta er sami maðurinn sem sagðist ekki vilja koma til Íslands útaf því að það væri of dýrt. Eftir að við aflýstum brúðkaupinu þá Sýndum við bara the Tengdós landið.
Október. Fyrsti "vetrar"dagur.
Nóvember. Æfingar á Emil í Kattholti byrja. ÉG átti fyrst að vera statisti(sadisti) en síðan hætti Brooks og ég fékk hlutverkið hans. Alfreð. Þá byrjaði ég að safan skeggi og öðrum líkamshárum.
Desember. Frumsýningin á Emil!!!!! Vúhú. Sýningar og fleiri sýningar. Jólin. Áramót. Árið búið.

laugardagur, janúar 04, 2003

ég þakka Jónasi fyrir mjög gott svar og ég dreg ummæli mín til baka.

föstudagur, janúar 03, 2003

Er að lesa Lovestar eftir Andra Snæ Magnason. Mjög góð og mjög frumleg. Ef eitthvað er samt þá er hún greinilega undir áhrifum frá 1984 eftir George Orwell.

miðvikudagur, janúar 01, 2003

Baldur. Ég er búinn að kíkja á póstinn en ég get ekki svarað honum fyrr en Binet kemst aftur í lag.
Keypti risa sleikjó frá Krónunni þann 30. Og Ætlaði mér ekki að byrja á honum fyrr en á slaginn 00:00 Gamlárskvöld. Og allt í einu fékk ég eina brilljant hugmynd um söga. Morðsaga. Um fjöldamorðingja sem nota Risa-Sleikjó til að kremja höfuðið á fólk. Og Koverið væri þannig að það væri hendi að halda á blóðugu sleikjó-i.
Bölva ég nokkuð alltof mikið?
Ein spurning til þeirra sem eru í Hvítasunnusöfnuðinum og/eða Krossinum eða eitthvað þess háttar. Fóstureyðing. Fyrst við getum framkvæmt fóstureyðingar. Þýðir það ekki að við fengum leyfi frá Guði til að framkvæma þau? Þannig af hverju megum við ekki nýta hlutina sem Guð bannar okkur greinilega ekki?

þriðjudagur, desember 31, 2002

Hvernig er eiginlega forgangur hjá Forsvarsmönnum í Landspítala-Háskólasjúkrahúsins? Hverjir hérna sem eru að lesa fannálinn minn(Þessir 6 manns) lásu Fréttablaðið þann 28.12? Þar var áhugaverð grein um Landakot. Heilabilunardeildin var lokuð í sumar "tímabundið", það átti að opna Deildina aftur þann 06.01.03. En ekkert verður úr því í staðin er komin Húðdeildin?!?!?!?!?!!!!!!

Jæja þannig er um rassinn hlúið. Húðdeildin er mikilvægari en Heilabilunardeildin! Þetta fólk sem er á svona deildum og hjúkrunarheimilum þurfa á aðhlynningu 24 klukkutíma dagsins. Og það voru 18 manns á þesari deild og af þessum 18 þá voru 3 sendir heim!!!! SENDIR HEIM?!?!?!?! HVAÐ Í *-/+-/%$&$# ERU ÞEIR AÐ HUGSA?!?!?! Þetta fólk þarf hjúkrun hjá fagfólki. Og af sem ég best veit þá er ekki heimahjúkrun á nóttunni.

mánudagur, desember 30, 2002

R-listinn er dauður. Nú er það staðreynd. Framsóknar-menn og Vinstri-Grænir hafa drepið R-listann. Og Framsóknin er búinn að fremja pólitískt sjálfsmorð.
Eftir að Ingibjörg sagði af sér þá mun R-listinn tapa miklu fylgi sem fer (Því miður) til D-Listans.
Alfreð og Árni Þor eru ekkert nema tækifæris-pólitíkusar og voru greinilega bíða eftir rétta tímanum til að bola Ingibjörgu burt. Slátra gullkálfinum. Þetta var greinilega tækifæri til að kyssa hana Júdasar-kossi.
Þetta var líka hálfvitaleg viðbrögð hjá þeim þegar hún bauð sig framm í 5. sætið. Það er ekki einsog það sé öruggt Þingsæti. Ég meina þetta er hjá Samfylkingunni ekki Sjálfstæðisflokknum. Ys og þys útaf saur í kanil.
Hún er að berjast við Halldór og Davíð!!!!! En þetta var samt líka heimskulegt hjá honum Halldóri að flytja sig um set. Hann átti meiri möguleika á öruggu þingsæti í Suðrkjördæminu en í Reykjavík. Ef hann tapar þá fær Ingibjörg sætið hans.
Ég ætla að biðjast afsökunar til notenda horn.is. Ég sló in vitlausa slóð það var ekki judas_disciple.blogpsot.com heldur judas_disciple.blogspot.com.

sunnudagur, desember 29, 2002

ÉG er soldið fúll útí gestina mína hér á minni blogg-síðu. Samkvæmt teljaranum(síðast þegar ég leit á hana) þá hafa 422 manns heimsótt síðunna en 6 samkvæmt gestabókinni. ÞAnnig ef ég fer eftir stærðfræðinni þá hafa þessi 6 komið á síðunna 70.33333 sinnum. Ég veit það nú best að ég er ekki svona áhugaverður. Þannig viljið þið gestir mínir skrifa í gestabókinna.

laugardagur, desember 28, 2002

Samkvæmt teljarannum þá hafa 398 manns komið á teljarann. Og ef ég fer eftir gestabókinni þá hafa 5(6 ef þið teljið mig með) manns heimsótt síðunna. Ef ég fer eftir þessu þá hafa þessir sömu komið 66.33333 sinnum síðunna. ÉG veit þa ðsjálfur að ég er ekki svo merkilegur. Þannig ég vil endilega biðja fólkið sem fara á þessa síðu og hafa ekki skrifað í Gestabókinna
. ÉG hafði fyrir því að skrifa allar þessar umsóknir.
Það er ekki langt í Nýja árið. Sem betur fer þarf ég ekki að vinna á Gamlárskvöld en ég þarf að vinna á nýarsdag. Þannig það er ólán í láni.

En lífið er gott. Við Sono ætlum að taka yfir heimlinu hjá mömmu og pabba koma með Amelie á DVD og horfa á hana í nýja fína PS2 sem fjölskyldan fékk frá Bróum mínum.

Annað gaman. Fór í klippingu á Þorláksmessu og lét skilja bartanna eftir. Rosa gaman og síðan rakaði ég mig á Annan í jólum. Fagnaðarraksturinn!!!! Og nú get ég leikið klósettatriðið með Elvis. Þannig langar mig að deyja. Hjartaáfall á meðan maður er að kúka.

föstudagur, desember 27, 2002

Ég fór á bekkjarpartý í gær. Það átti að vera gaman og það var gaman að sumu leyti. En fyrir mig var þetta einsog að setja salt á opið sár. Það var margt um þennan bekk sem eg rifjaði upp og mér leyst bara alls ekki á.

Og Dóri kannski ppizzurnar eru betri þegar þú ert að vinna en hver sem gerði pítsuna núna var ekki neitt sérstaklega handlagin í því.

þriðjudagur, desember 24, 2002

!!!!!!!!!!!!GLEÐILEG JÓL!!!!!!!!!!!!!


!!!!!!!!!!OG FASÆLT KOMANDI ÁR!!!!!!!!!!


Ég ætla að spila miklu fleiri tölvuleiki eftir þessi jól.

sunnudagur, desember 22, 2002

ég horfi of mikið á sjónvarp.... og ég spila alltof mikið af tölvuleikjum...

a href="http://quizilla.com/users/theandrea/quizzes/What%20Office%20Space%20character%20are%20you%3F/">
What Office Space character are you?
brought to you by Quizilla
Fucking hell ye!!!!! Alltof margir tölvuleikir...

Harry%20Potter
The Ultimate *Which Harry Potter Character are You?* Quiz

brought to you by Quizilla
Ætti ég að tala við Dodda? Alltof alltof margir tölvuleikir.


Which Personality Disorder Do You Have?

brought to you by Quizilla
Kemur mér alls ekkert á óvart. Kannski þessir tölvuleikir hafi farið illa með mig?


What Slasher Movie Killer Are You?

brought to you by Quizilla

Var að horfa á Frailty. Bara andskoti góð og mjög óvænt. Annars er allt gott að frétta. Tveir af minum bræðrum(af 3.) komu í gær um miðnætti.

fimmtudagur, desember 19, 2002

Nöldur #3.
Hótel Höfn. Hvað kom fyrir Ósinn? ég pantaði flatböku(pítsu(pizzu)) þaðan í dag og það er í fyrsta skipti síðan í Maí. Í Maí voru flatbökurnar vondar. Núna eru þær verri! Þetta var hræðilegt. Ég pantaði flatböku með nautahakki, pepperóni og extraosti. Nautahakkið var ofsteikt, og of lítið af því. Flatbakan leit út einsog hún væri með fílapensla! Pepperóní-ið var ekki eldað! Og deigið... var ennþá deig. Hvað kom fyrir ástkæra Ósinn!!!!! Og í þokkabót kostaði hún 1200 kr!!!!!!! Á víkinni kostðai hún 990 kr. 9 tommur.

Annars er allt í fína. Keypti lifandi tré í gær. Þetta er í fyrsta skipti sem ég kaupi lifandi tré. Og það síðasta. Og skreytum það líka í gær. Og kötturinn vill endilega líka sér. En hún læri lexíu sína þegar hún stingur sig.

Og kötturinn er núna líak mestu leyti sofandi útaf greddunni þessa vikunna.

miðvikudagur, desember 18, 2002

Kæri Jónas. Ekki taka þetta til þín. Ég nenni ekki að rífast um pólitík. Ég skal segja frá öllu sem mér finnst óþolandi um Samfylkingunna einn góðann veðurdaginn. En við hljótum að vera sammála því að VG er mest óþolandi flokkurinn!
Í öðru lagi:
Slagorðið hjá Sjálfstæðismönnum "Stétt fyrir stétt"! Ef þetta væri rétt hjá þeim þá væri ekki svona mikill munur á Fátækum og ríkum. Einn gamall maður sagði mér að hann fengi 16000 frá lífeyrissjóð og þar af færu u.þ.b. 10000 í skatt! Þetta kalla ég ekki stétt fyrir stétt.

Og hverjir muna ekki eftir Öryrkjamálinu? Það var yndislegt. OG ég man eftir því að einhver spurði Björn Bjarna þegar borgstjórnarkosninginn var í hámarki um Öryrkjamálið þá svaraði hann pent "Hva, er þetta ekki löngu dautt mál!"!!!!!!!!! Og talandi um borgarstjórnakosningarnar. Ég hef aldrei séð jafn mikið ósamræmi í hjá einum flokki. D-listinn hafði allt aðra stefnuskrá í fyrir borgarstjórnina en ríkisstjórnina! Og Ég vorkenni D-listanum fyrir að hafa þessa konu í borgarstjórn. Óþolandi kerling.
Fyrsta lagi:

Af einhverjum ástæðum mundi ég allt í einu eftir Bónus-bréfinu. Munið þið ekki eftir því. Þegar Össur skrifaði bréf til Bónus með hinum og þessum frösum? Og sjálfstæðismaðurinn(Hvað sem hann heitir) gaf út bréfið og sagði "Þetta er Samfylkingin í anda". Össur skrifaði neðst:
"Össur Skarphéðinnsson, Lífeðlisfræðingur" Það var ekkert minnst á Samfylkingunna og hann sagði ekki "Össur Skarphéðinnson, Formaður Samfylkinginunnar" Og síðan gerðu Sjálfstæðismenn rosalega mikið úta þetta!
Mig langar að fá að vita hvað hefði gerst hefði Davíð skrifað sama bréf og endað með orðunum "Davíð Oddson, Lögfræðingur". Segið mér "Sjálfstæðismenn" hvað hefðu þið sagt þá. Og segið satt!
Það er margt sem pirrar mig. Og ég ætla mér að skrifa sitt lítið af hverju núna

mánudagur, desember 16, 2002

ÉG elska ketti. Alveg dýrka þá. Vil alltaf eiga ketti. O.s.frv. En nú er ég komin með eina reyslu um ketti sem ég vil helst ekki upplifa aftur. Það er það þega læður eru að drepast úr greddu. Kötturinn minn sem er 9 mánaða er að drepast úr greddu. Og vill ekki hætta að breima. Það eina hún sem gerir núna er að breima, éta, skíta og sofa. Kannski ég ætti að taka bangsann sem hangir á vegginum til þess að fá eitthvað að ríða.

En nóg um það. Þessi helgi er ég bara búinn að vera veikur. Hósta, hnerra og snýta. En ég lék samt í gær. Það er ekki til nein afsökun við því að leika ekki nema dauði. Manns eigin þá.

föstudagur, desember 13, 2002

Jæja ég fékk loksins tölvu um helgina. Fekk hana gefins frá vinafólki(Vinir? ÉG?!) og þegar ég tók hana með mér heim þá byrjaði ég á því að formatta hana. ÞAÐ TÓK 26 KLUKKUTÍMA!!!!! Og þegar ég var búinn að formatta hana þá vildi hún ekki kveikja á sér. Þannig ég sendi hana í viðgerð. Komst að því að sonur vinafólks míns hafði eyðilagt harða diskinn, móðurborðið og týnt drivernum fyrir skjákortið. Vúppí. En nú er hún í fínu lagi og ég á eftir að eiga marga góða daga með henni. Og öllu ofbeldisfulluleikjunum mínum.

P.S.
Til Hamingju Helga Lúcía.

miðvikudagur, desember 11, 2002

Skemmtileg þessi umræða um tölvuleiki. Það er alveg stórskemmtilegt hvað foreldrar reyna að komast framhjá því að vera kallaðir vondir foreldrar. Þið hafið fylgst með þessari umræðu er það ekki? Það er verið að tala um að ofbeldisfullir leikir, kvikmyndir og þættir skapi geðsjúk börn. Nei ÞETTA ER ALVEG RANGT. Tökum mig sem dæmi(Þótt ég sé ekki besta dæmið) ég spilaði Wolfenstein, Duke Nukem, Pacman, Eye of the beholder, Ultima, Doom o.s.frv. Ég er ekki búinn að taka upp byssu eða sverð og drepið fólk hér út á götu útaf því að það eru allir nasistar eða þjófar!

Tölvuleikir, sjónvarpsþættir og Kvikmyndir skapa ekki geðveik börn. Heldur fá geðveik börn hugmyndir. Það er eitthvað að krökkunum ef þeir byrja að herma eftir tölvuleikjum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum! Og það er þá sem foreldrar verða að líta í eigin barm og skoða hversu góðir foreldrar þeir hafa verið!

Who's your daddy?? Find out @ blackhole

mánudagur, desember 09, 2002

So true so true





Take the What High School
Stereotype Are You?
quiz, by Angel.
ER að klára snilldarbók sem heitir Spellsinger eftir Alan Dean Foster. Ég mæli með henni sem hafa gmana af fantasíum.

föstudagur, desember 06, 2002

Hún Sono fékk bréf frá Svæðisvinnumiðlun Austurlands um það að hún eigi að koma á fund til Vökuls næsta fimmtudag. Í þessu bréfi stóð að hún ætti að búa til plan sem sá sem er viðstaddur á að samþykkja. Þetta plan á að ganga út á það að hún eigi að fá vinnu!!! Nei hver andskotinn. Þessi áætlun á að vera raunsæ og á að framfylgja henni. Mig langar að spurja þann sem er að lesa þetta(Ef það er þá einhver) ef maður er atvinnulaus og er að leita sér að vinnu. Gengur þá þessi "áætlun" út á eitthvað meira en að hringja eða mæta á vinnustaði og spurja um vinnu eða sækja um vinnu? Síðan á hún að skila skýrslu um hvernig gengur á tveggja mánaða fresti. Hversu langa skýrslu? Ef manni gengur illa á maður þá ekki að segja. "Ég er ennþá atvinnulaus. En ég er ennþá að leita!" og ef maður er komin með vinnu þá segir maður "Komin með vinnu" eða bara alls ekki neitt.

Sumt af þessu er bara alltof skrýtið, hvernig við náðum að breyta samfélaginu yfir í það sem George Orwell skrifaði um í 1984.
Og hann var að reyna að vara okkur við!

fimmtudagur, desember 05, 2002

Geriðið þið það fyrir mig . Skrifið í andskotans gestabókinna. Ég hafði fyrir því að skrifa öll þessi umsókn.
ÉG er komin með ákveðin hausalista. Þaes fólk sem er réttdræpt í mínum augum:
1. Kennarayfirvöld á Englandi. Því í t.d. sögu þá kenna þeir ekkert um Breska sögu, þeir kenna í staðinn Ameríska sögu. Villta vestrið og þess háttar. Sono visii t.d. ekki hvað Magna Carta var!
2. Hálfvitarnir sem breyttu Sindrabæ frá frábæru leikhúsi, góðu bíó-i og þar fram eftir götum í ónothæft leikhús og Sjónvarpssal!
3. Davíð Oddson
4. Steingrím J. Sigfússon

Passiði ykkur bara. Því ef þið gerið eitthvað sem mér er ekki til geðs þá bættist þið inn á listann!

miðvikudagur, desember 04, 2002

Ég elska Höfn. En það er eitt sem fer í taugarnar á mér. Það er það að við köllum Höfn fiskveiðibæ. Af hverju? Jú útaf því að það eru 3 fiskifyrirtæki hér. En Hvar er þá ferski fiskurinn? Af hverju fáum við engann ferskan fisk hér í þessum bæ? Ég vil fá ferskan fisk. Ekki frosinn fisk. FRESKAN!!!!!! Þannig við þurfum á Fiskiverslun að halda. Hver hérna vill setja á stofn Fiskiverslun sem selur ferskan fisk? Og kannski kjöt með því?

Það er líka tvennt hér sem vantar. Bókabúð og Músíkverslun. Þetta þrennt vil ég sjá hér og þá mun ég elska þennan bæ meira.
Hvað er þetta með Jónas og Helgu Lúcíu? Af hverj ueru þauað rífast um þetta? Ég ætla að enda þetta rifrildi núna:
Félagsfræði: Fyrir þá sem vilja öðlast meiri skilning á samfélaginu, félagslífinu, lífið og tilverunni í heimspekilegu sjónahorni.
Náttutúrufræðibraut: Fyrir þá sem vilja öðlast meiri skilning á náttúrunni, hvernig lífið gengur fyrir sér á þessari jörð, lífið og tilverunna í vísindarlegu sjónarhorni.
Málfræðibraut: Fyrir þá sem vilja geta ferðast um heiminn án þess að nota túlk.

So take your pick and shut up.
Ég er búinn að taka þá ákvörðun að gerast hjúkrunarfræðingur! Og nú eru áræðanlega flestir af mínu kyni að hugsa "Ha, hjúkrunarfræðingur. Er það starf fyrir karlmann?" og þá segi ég nú bara mér finnst það álitlegra að verða hjúkka heldur en læknir. Það er ekki hringt í mann 30 sinnum á nóttunni þannig ég fæ að halda mínum svefni alveg þangað til ég eignast krakka. Ekki skil ég hvað er að mínum kynbræðrum þegar þeir halda að þetta sé eingöngu kvennastarf. Ætli einhver þeirra hafi reynt að lyfta 100 kílóa karli eða nokkrum kerlingum? Ég segi nú bara það að eina ástæðan fyrir því að konur vinna í þessu starfi er útaf því þær eru hugrakkari en flestir karlmenn. Þetta er alveg einsog með það að karla mundu aldrei þola það að vera ófrískir... hvað þá að fæða eitt stykki barn! Eða tvö!

En nóg um það. Hún Makó(Tengdó) vinnur í Lancaster háskóla og komst að því að ég get farið styttri leiðinna. Þannig ég þarf ekki að klára framhaldskólann. Þeir í Englandi eru að reyna að fá fleiri til að læra hjúkrunarfræði og læknisfræði, þannig að nokkri fá undanþágu. Einsog ég. Þeir sem eru búnir að vinna á sjúkrahús eða hjúkrunardeild um einhvern tíma þá fá þeir undanþágu. Ég er búin að vinna á HSSA(Skjólgarð) í u.þ.b. 2 ár þannig það eina sem ég þarf að gera er að læra í eitt ár fyrir GSCE-próf(Jafngildi Stúdentspróf) standast þau og þá get ég farið beint í hjúkrunarfræði eða læknisfræði! Vúhú.

Þannig ákvörðunin er sú að flytja til Englands í Maí(Líklegast) á næsta ári og fara á eilíft pöbbarölt.

þriðjudagur, desember 03, 2002

Já þetta vissi ég. Ætli Sono verði ánægð með þetta eða er ég meira bresk en hún?




Jolly good, wot! Anyone for tennis? That'll be ten ponies, guv. You're the epitome of everything that is english. Yey :) Hoist that Union Jack!

How British are you?

this quiz was made by alanna


Ég náði loksins að skoða slúðursíðunna hans Eysteins. Hverjir hérna muna eftir slúðursíðu Rögnvalds? Hún var að mörgu leyti betri en þessi, en eini margttæki munurinn er sá að hjá honum Eysteinni eru myndir og færri málfræðivillur.

mánudagur, desember 02, 2002

Sýning #2 var í gær. Þessi sýning var góð. Mjög góð. Og að Jónas skuli voga sér að segja að önnur sýning er alltaf verst. Það er bull og helvítis vitleysa Jónas! Eina ástæðan af hverju þetta er sagt er útaf því að hér áður fyrr var sýning #2 alltaf haldin daginn eftir frumsýningarpartý. Þannig allir voru skelþunnir. Núna eigum erum við ekki með þetta vandamál.

sunnudagur, desember 01, 2002

Nýr fídus. Tilvitnun. Ég mun gefa út tilvitnun þegar ég nenni og þegar ég finn góða tilvitnun.
Var að klára að lesa Hogfather eftir Terry Pratchett. Ekki nema helvítis snilld. ÉG mæli reyndar líka með Thief of Time, Mort, The colour of magic, The light fantastic og reyndar allri seríunni sem eru 25 bækur!
2.Sýning í dag.


Þetta er sú sýning sem ég kvíði sem mest fyrir. Af hverju? Útaf því að flest almennt fólk heldur að þessi sýning er verri en Frumsýningin. Eða þá að fólk kemur með of háar væntingar! Eða það kemur bara gamalt fólk sem heldur kjafti allan tímann. General prufan er líka mjög stressandi. Hún fyrir mig tekur mest af stressinu burt. Þanig að ég er aldrei stressaður fyrir frumsýningu. En hvað um það. "Elsku Ingvar, Break a leg, poj poj. Og ekki nefna skoska leikritið"

Hvernig hérna hafa pælt í þessu hugtaki. Break a leg? Ég hef komist af því hvað það þýðir. Upprunalega var þetta Break a log. Flest leikhús höfðu þessi tjöld sem voru dregin upp og niður. Og á endanum á þessum tjöldum voru trjádrumbar. Og tjöldin voru hífð upp og niður þegar var klappað. Semsagt, þetta var þannig að fá það oft klappað að drumbarnir mundu brotna.



Ég fór á Jarðaför í gær. Það var hún frænka mín Guðrún Sigurðardóttir frá Fagurhólsmýri. Það sem ég get sagt er að ég mun sakna hennar. Þetta var ein yndislegasta kona sem hefur verið á þessari jörðu. Og þetta var stór reynsla. Ekki góð, vond eða þvíum líkt bara stór. Rigningin var alver ferleg. Það ringdi meira þar en hér á Höfn. Og Hofskirkja leynar alveg rosalega á sér. Að utan gæti maður haldið að hún tæki 20 manns hámark. Seinna meir frétti ég að hún gæti tekið 80 manns. Jahá. En þetta er mjög skemmtileg kirkja. allvega mun skemmtilegri til útlits en Hafnarkirkja. Seramónían var svona u.þ.b. 50 mínútur, og það sem kom mér mest á óvart... ég sofnaði ekki neitt. Efitr það fórum við í Hofsgarð í erfisdrykkjunna. Það eina sem var gott við það var maturinn! Ég þekkti kannski svona á bilinu 10-15 manns þarna. Síðan fórum við heim. Og ég og systur mínar sváfu mesta alla leiðinna...

föstudagur, nóvember 29, 2002

Það er margt skrýtið hér á Hornafirði...

Guðmundur Ingi, besti sadisti sem til er... hann er þannig sadisti að hann færir Masókista EKKI það sem hann vill. Hann kærði nemendafélag FAS fyrir kleinubakstur! Það er langbest að lesa þetta hjá henni Helgu Lucíu.

Í gær var frumsýnt Emil í Kattholti. Þar sem ég var Alfreð og ég verð að segja að það tókst alveg rosalega, rosalega vel. Jónas og Árnína brilluðu á sýningunni. Alveg frábær bæði tvö. "Ó, hvað ég er stoltur af þeim!" Og eftir það var veisla á Kaffihorninu og það var djö**ll gaman. Ég sagði við konunna að ég ætlaði að koma heim kl 23:00 og kom eitthvað í kringum 2:30. Soldið hífaður en það skiptir eki öllu. Þeir sem vilja spara pening og vera fullir FLJÓTT kaupið ykkur þá sýklalyf og fáið ykkur svo að drekka. Virkar eftir einn og hálfan bjór.
Djöful er ég þá flottur. Ef ég væri bara Gandalfur. En nóg um það. Hér á þessum hlekk er draumatölvan mín.
Gandalf

Gandalf the Grey

If I were a character in The Lord of the Rings, I would be Gandalf, Wizard, a guardian against the Dark Lord.

In the movie, I am played by Ian McKellen.

Who would you be?
Zovakware Lord of the Rings Test with Perseus Web Survey Software

föstudagur, nóvember 22, 2002

Allt gott kemur í þrennum. Ef svo má segja. Þrenna hinnar dánnu fullkomnaðist í gær hér á Höfn. Ég vinn á Hjúkrunardeild Hornafjarðar, þar sem ekkert nema lang veikt fólk býr. Hún Finnbjörg, sem var líklega elsti heimsins mongólíti, dó fyrir sirka viku, Gunna frænka frá Fagurhólsmýri dó í fyrra dag eftir langa baráttu við krabbamein og síðast en ekki síst Þóra Guðmundsdóttir frá Svínafelli dó í gær. Semsagt þrenna. Það gerist nánast alltaf þannig að tveir deyja á Hjúkrunardeildinni og einn einhverstaðar annars staðar. Annaðhvort einhver á Höfn, eða frá Höfn.

Semsagt fullkomnun hinna þriggja...

þriðjudagur, nóvember 19, 2002

Jæja. Long time, no fucking write. Ef einhver(je ræt) hefur pælt í því þá hef ég verið upptekin við að vinna, sýna tengdós landið og síðast en ekki síst leikið. Á Höfn(þar sem ég bý) er verið að setja upp Emil í Kattholti og ég á að leika vinnumannin Alfreð. Ef það er rétt hjá einhverjum þa er þetta líklega 3 homma-hlutverkið í röð sem ég leik(Er einhver að reyna að segja eitthvað um mig?)! Rökin mín og hjá öðrum eru þessi. Alfreð vill alls ekki giftast Línu og Alfreð vill meira vera með Anton og Emil. En hey, þetta eru bara pælingar þannig Lindgren-fans ekki vera reið.

þen það sem mér finnst vera skrýtið er það að Alfreð á að vera ljóshærður, vöðvamikill og þrítugur. Og ég er ekki neitt af þessu. Þannig leikstjórinn bjargaði þessu með því að banna mér að raka mig(Þetta er í fyrst skipti sem mig langar að raka mig) og lét mig fá langerma skyrtu! Málinu reddað ekki satt? En nóg um það.

Síðasta laugardag þá vorum við með stuttan búr úr Emil á 1 árs afmæli Miðbæs. Og að mínu áliti brilleraði hún Árnína allt saman. Og ef spáin mín er rétt þá fá Jónas og Árnína örugglega bestu dómanna, og svo auðvitað pabbi einsog venjulega! Getur einhver Hornfirðingur sagt mér hvenær hann hefur leikið illa. Ég vill ekki vera í skugga hans... Ef ég mun læra leiklist þá mun 0rugglega verið skrifað í Eystrahorninu "Einsog þið vitið þá er Ingvar Árni sonur stórleikarans Ingvars Þórðarssonar, þannig hann á hæfileikanna ekki langt að sækja"! ARGH!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!